nefnd um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni góðar óskir sem þó voru þrungnar ákveðnum efasemdum. En ég lít bara á það sem hvatningu til að okkur lánist á þessu kjörtímabili að koma þessu máli áfram. Það eru auðvitað stór orð þegar talað er um sátt í svona stórum málaflokki og ekki síst þegar um er að ræða viðvarandi ágreining í samfélaginu, sem hv. þingmaður nefndi hér í fyrri fyrirspurn sinni og er svo vel dregin upp í þáttunum Verbúðinni. Ég er samt algjörlega sannfærð um að það eru fleiri en færri í þessu samfélagi sem vilja meira réttlæti og vilja meiri sanngirni en fólk upplifir í kerfinu eins og það er. Sumt af því er hægt að leysa með því að auka gagnsæi og tryggja að þau viðmið sem sannarlega eru fyrir hendi í lögum séu virt.
Þetta eru mörg skref og ég tek brýningu hv. þingmanns til marks um að þingflokkur Pírata hafi áhuga á því að bæta þetta kerfi.