fjarnám og stafrænir kennsluhættir á háskólastigi.
Virðulegi forseti. Á síðustu tveimur árum hefur almenn færni í notkun stafrænnar miðlunar, fjarvinnu og fjarkennslu tekið stökkbreytingum auk þess sem tækninni fleygir stöðugt fram. Í desember lagði ég ásamt fleirum fram tillögu til þingsályktunar um fjarnám á háskólastigi þar sem lagt er til að skipaður verði starfshópur til að vinna aðgerðaáætlun um frekari eflingu fjarnáms með áherslu á þróun stafrænna kennsluhátta. Í tillögunni er lögð áhersla á að íslenskir háskólar verði í fremstu röð í notkun stafrænna kennsluhátta, bæði til að auka aðgengi að námi og gæði alls náms, hvort sem nemandi stundar námið innan veggja háskólanna eða í fjarnámi. Með öðrum orðum að tæknin verði alltaf notuð til að tryggja að nám sé gott og aðgengilegt. Þá er lögð áhersla á að hægt sé að stunda allt nám sem fjarnám nema það sé eitthvað sem sérstaklega mælir á móti því, svo sem verkleg þjálfun. Á engan hátt er þó dregið úr mikilvægi staðnáms.
Virðulegi forseti. Mér er ljóst að sjálfstæði háskóla um útfærslu náms er mikið en ég vil hér spyrja hæstv. háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra hvernig stjórnvöld geti stutt við og hvatt háskóla til að auka framboð á stafrænu námi og þar með fjarnámi. Þá vil ég spyrja hvort hæstv. ráðherra telji koma til greina að skilgreina hópa fólks sem vegna sérstakra aðstæðna, svo sem búsetu, fjölskylduaðstæðna eða ástundunar afreksíþrótta, ættu rétt á tilteknum sveigjanleika í námi þó lagt sé stund á nám sem einkum er í boði sem staðnám. Eða væri t.d. hægt að skapa þessum hópi meiri sveigjanleika meðan innleiðing fjarnámsins stendur yfir í greinum þar sem fjarnám er ekki í boði nú þegar?