fjarnám og stafrænir kennsluhættir á háskólastigi.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir. Það er rétt, ótrúlegustu hlutir hafa gerst á síðustu tveimur árum til að koma hlutum, sem hefðu kannski átt að vera komnir lengra í stafrænni væðingu, á réttan kjöl. Við þurfum að nýta okkur það tækifæri og það góða samstarf sem stjórnvöld hafa átt við háskólann á undanförnum mánuðum og árum í tengslum við heimsfaraldurinn. Í markmiðum stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er talað um að nýta tæknibreytingar til að skapa aukin lífsgæði. Þarna finnst mér við algerlega vera að segja að eitt af lykilatriðum til að gera það sé að tryggja aukið aðgengi að námi. Við þurfum að gera það líka til að efla þekkingu og til að tryggja jöfn tækifæri við þær umbreytingar sem við þurfum í menntakerfinu fyrir það samfélag sem við erum að búa til, til að tryggja íslenskt hugvit o.s.frv.
Það er rétt sem hv. þingmaður segir varðandi sjálfstæði háskólanna. Þetta eru sjálfstæðar stofnanir og ráðuneyti eða ráðherra íhlutast ekki um fyrirkomulag náms og kennslu sérstaklega. En við getum auðvitað aðstoðað og það er ljóst að háskólarnir hafa unnið ákveðna greiningarvinnu á námi sínu undanfarið, hvar henti að bjóða upp á fjarnám og á sama tíma hvar áhugi sé á að bjóða upp á fjarnám. Valfrelsi nemenda hlýtur að vera markmið háskólanna, að auka það, og ráðuneytið á að hjálpa til við þá þróun og ýta undir hana. Sumir háskólar hafa skilgreint sig sem fjarnámsháskóla sérstaklega og aðrir hafa leitast við að bjóða upp á blandað nám. Allir þessir háskólar hafa stigið gríðarlega stór skref síðustu tvö ár og við þurfum að nýta það og tryggja að stjórnvöld aðstoði þá við að bjóða upp á meira fjarnám. Ég held að hugmynd hv. þingmanns um þessa sérstöku hópa sé eitthvað sem við ættum að skoða samhliða því og spyrja kannski sérstaklega háskólana hvort það sé eitthvað sem þeir hafi verið að skoða eða séu tilbúnir til að skoða.