152. löggjafarþing — 34. fundur,  7. feb. 2022.

fjarnám og stafrænir kennsluhættir á háskólastigi.

[15:36]
Horfa

Líneik Anna Sævarsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svörin. Það er mikið hagsmunamál fyrir einstaklingana og samfélagið á landsbyggðinni að hægt sé að stunda nám án búferlaflutninga en jafnframt að afla þekkingar sem samfélögin þurfa á að halda, svo dæmi sé tekið í félagsráðgjöf og talmeinafræði sem mikið er kallað eftir. Einstaklingarnir hugsa auðvitað um hvað hægt sé að gera núna, ekki eftir fjögur ár þegar innleiðing stefnu háskólanna verður komið til framkvæmda. Ég vil því spyrja hæstv. ráðherra hvort ekki þurfi að bregðast sérstaklega við núna, þegar margir hafa meira og minna verið í fjarnámi í tvö ár, til að skapa því fólki sveigjanleika til að ljúka náminu í fjarnámi. Þetta er fólk sem ýmist hefur nýtt Covid-tækifærið til að fara í fjarnám eða verið ýtt í fjarnám. En það er undarleg staða þegar nemendur sem hafa jafnvel fengið þær upplýsingar að ekki sé hægt að stunda fjarnám í tiltekinni námsgrein hafa svo ekki fengið að mæta í skólann (Forseti hringir.) þó að þeir séu búnir að leigja sérstaklega húsnæði á höfuðborgarsvæðinu.