skipulag háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytis.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir þessar spurningar. Ef nýsköpun á ekki heima í nýsköpunarráðuneytinu, nýsköpun í Stjórnarráðinu og stjórnsýslunni okkar, þá veit ég ekki hvar best væri að innleiða hana. Ef ég byrja kannski á því sem hv. þingmaður kemur inn á varðandi störf án staðsetningar þá hefur verið lögð áhersla á það. Gerð var úttekt sem sýndi að ráðuneyti gætu oft boðið í kringum 11% starfa án staðsetningar. Margar stofnanir sýndu enn þá minna hlutfall, þ.e. hversu mörg slík störf þau töldu sig geta boðið. En þetta var úttekt sem var auðvitað gerð fyrir heimsfaraldur og síðan hafa allir reynt það og séð að það er hægt að ganga miklu lengra. Þannig að ég tel mig vera að ganga lengra og a.m.k. að ganga á undan með góðu fordæmi hvað varðar metnaðarfull markmið ríkisstjórnarinnar í þessa veru, en líka til að nýta þau tækifæri sem eru víða á landsbyggðinni, nýta þá þekkingu sem er fyrir hendi, þannig að þau störf sem auglýst verða verði nær öll, nema ekki verði hjá öðru komist, auglýst án staðsetningar.
Varðandi stöðugildin í ráðuneytinu eru þau í kringum 35, að ég tel. Það er verið að ganga frá síðustu endunum, en mig langar líka að horfa til þess að geta verið með verkefnamiðaðri nálgun og ráðið fólk inn í styttri tíma í ákveðin verkefni með þeim sem nú þegar starfa í ráðuneytinu, til þess að ýta málum áfram, fá nýja innsýn frá fólki sem kemur annars staðar frá o.s.frv. Varðandi fagskrifstofurnar eru þetta í rauninni tvær fagskrifstofur, ef svo má að orði komast, en innan þeirra eru allir málaflokkar ráðuneytanna. Önnur skrifstofan sér um framkvæmd og eftirfylgni, sem er orðalag beint úr LOF, lögum um opinber fjármál, og sér um samskipti við stofnanir, fjárlög, samningagerð og grunnstjórnsýslu. Hin er skrifstofa stefnumótunar sem sér þá um þau verkefni sem ráðuneytið og ráðherra (Forseti hringir.) ætla að setja á dagskrá og verður verkefnamiðuð skrifstofa með þeim málaflokkum sem heyra undir ráðuneytið.