viðspyrnustyrkir.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um viðspyrnustyrki nr. 160/2020. Á grundvelli þeirra laga hafa rekstraraðilar getað sótt um viðspyrnustyrki til Skattsins hafi þeir orðið fyrir tekjufalli vegna heimsfaraldurs kórónuveiru og aðgerða stjórnvalda til að verjast útbreiðslu hennar. Í frumvarpinu er lagt til að viðspyrnustyrkjaúrræðið verði framlengt um fjóra mánuði, frá desember 2021 til og með mars 2022. Lagt er til að úrræðið verði í öllum meginatriðum óbreytt frá því sem verið hefur. Þannig er lagt til að fjárhæðir styrkjanna og útreikningur á þeim verði óbreyttur og að öll umgjörð um framkvæmdina verði sú sama.
Þær breytingar sem lagðar eru til leiða af þeim tíma sem liðið hefur frá því að úrræðið var fyrst kynnt til sögunnar en eru í meginatriðum eftirfarandi:
Í fyrsta lagi að umsækjandi hafi hafið starfsemi sína eigi síðar en 1. desember 2021 en í gildandi lögum er viðmiðið 1. október 2020. Með breytingunni verður rekstraraðilum sem hófu starfsemi á tímabilinu frá 1. október 2020 til 1. desember 2021 gert kleift að nýta úrræðið. — Ég tel að þetta sé sanngirnismál.
Í öðru lagi þarf umsækjandi að vera í skilum með opinber gjöld, skatta og skattsektir sem komnar voru á eindaga fyrir 1. ágúst 2021. Það er sama viðmiðunardagsetning um skilvísi og í nýsamþykktum lögum, nr. 2/2022, um heimildir veitingaaðila til að fresta skilum á staðgreiðslu opinberra gjalda, í lögum um tryggingagjald og í þeim frumvörpum sem nú eru til meðferðar í þinginu og varða annars vegar styrki til rekstraraðila veitingastaða sem hafa sætt takmörkunum á opnunartíma og hins vegar framhald á lokunarstyrkjum. Í öllum þessum tilvikum var miðað við þessa tímasetningu. Í gildandi lögum um viðspyrnustyrki er hins vegar miðað við lok ársins 2019.
Í þriðja lagi að skilyrði um rekstrarhæfi umsækjenda verði rýmkað á þann veg að ekki falli undir slit rekstraraðila ef slitin eru liður í samruna, skiptingu eða breytingu á rekstrarformi rekstraraðilans og fyrirhugað er að lögaðili sem við tekur haldi rekstrinum sem umsókn varðar áfram.
Í fjórða lagi að fengnir styrkir til rekstraraðila í veitingarekstri sem hafa þurft að sæta takmörkunum á opnunartíma dragist frá viðspyrnustyrkjum fyrir sömu mánuði. Gengið er út frá því að aðilar í veitingarekstri sem hafa þurft að sæta takmörkunum á opnunartíma muni sækja um styrki samkvæmt sérstöku úrræði sem ætlað er að mæta vanda þeirra, enda eru styrkfjárhæðir samkvæmt því ívið hærri en viðspyrnustyrkir. Frádráttarreglan er þó lögð til vegna þess að ekki er ætlunin að sömu aðilar geti nýtt bæði úrræðin fyrir sömu mánuðina.
Í fimmta lagi að hámarksfjárhæð viðspyrnustyrkja verði hækkuð úr 260 millj. kr. í 330 millj. kr. Þessi hækkun á rætur að rekja til tímabundins ramma Evrópusambandsins um ríkisaðstoð til stuðnings hagkerfinu vegna yfirstandandi Covid-19 heimsfaraldurs frá 19. mars 2020. Þetta hámark á styrkfjárhæðum gildir ekki bara fyrir einstakar tegundir styrkja eða einstaka rekstraraðila heldur ber, eins og áður, að leggja saman lokunarstyrki frá miðjum september 2020, tekjufallsstyrki, viðspyrnustyrki og ferðagjafir og er lagt til að styrkir til rekstraraðila veitingastaða sem hafa sætt takmörkunum á opnunartíma vegna kórónuveirufaraldurs falli einnig þar undir. Öll framangreind úrræði falla í sama flokk ríkisaðstoðarrammans og því undir sama viðmið um hámarksfjárhæð. Þá gildir einnig sama hámark fyrir tengda aðila í rekstri, þ.e. þeir deila einni hámarksfjárhæð óháð því um hve marga tengda aðila er að ræða. Við skilgreiningu fyrirtækis í framangreindum skilningi er horft til eigna- og stjórnunartengsla og teljast tengdir aðilar því eitt fyrirtæki þegar kemur að hámarkinu.
Loks er lagt til að heimilt verði að sækja um viðspyrnustyrki til 30. júní á þessu ári.
Gert er ráð fyrir að kostnaður vegna framlengingar viðspyrnustyrkjaúrræðisins um fjóra mánuði geti numið allt að 2 milljörðum kr. eða u.þ.b. 500 milljónum á mánuði. Þó er líklegt að greiddir styrkir í desember verði lægri enda var veltan sterk í mánuðinum þrátt fyrir fjölgun smita og hertar sóttvarnatakmarkanir. Enn fremur má áætla að í febrúar eða mars komi til frekari tilslakana á sóttvarnareglum sem gæti örvað eftirspurn og dregið úr tekjutapi fyrirtækja. Heildarkostnaður ríkissjóðs af framlengingunni gæti því orðið nokkuð minni. Ekki er gert ráð fyrir þessum útgjöldum í fjárlögum yfirstandandi árs og mun því afkoma ríkissjóðs að óbreyttu, miðað við forsendur fjárlaga, versna sem þessu nemur. Fjárveiting síðastliðins árs var þó ekki fullnýtt og kemur til álita að heimila flutning óráðstafaðra fjárveitinga frá síðasta ári til að mæta þessum kostnaði.
Virðulegi forseti. Ég mælist til þess að frumvarpinu verði vísað til hv. efnahags- og viðskiptanefndar og til 2. umr. að lokinni þessari umræðu.