viðspyrnustyrkir.
Virðulegi forseti. Nú hefur það komið fram, í þinglegri meðferð frumvarps um styrki til veitingastaða, að styrkumsóknir verða ekki afgreiddar og styrkir ekki veittir fyrr en eftir einhverjar vikur, hugsanlega mánuði. Hér erum við að ræða almennara frumvarp, um viðspyrnustyrki til atvinnulífsins almennt. Ég vil spyrja hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra hvort ráðherra geti ábyrgst að viðspyrnustyrkirnir sem hér er mælt fyrir skili sér hratt og örugglega til þeirra fyrirtækja sem virkilega þurfa á þeim að halda.