viðspyrnustyrkir.
Virðulegi forseti. Já, þetta er að sjálfsögðu mjög mikilvægt, sem hv. þingmaður nefnir hér, að við komum ekki bara með orð inn í umræðuna heldur verði athafnir að fylgja. Það þýðir að við komum með frumvarp og tryggjum að það fái framgang hér í þinginu. En ekki bara það að setja lögin heldur að síðan sé farið í að framkvæma það sem lögin kveða á um. Ég myndi vilja segja um almennu viðspyrnustyrkina: Það er þó til staðar kerfi sem hefur gengið ágætlega og Skatturinn hefur verið að sinna sambærilegum verkefnum. Það er aðeins öðruvísi með veitingastyrkina, þar hefur án vafa þurft að fara í ákveðna forritunarvinnu og starfsfólk hefur þurft að gera greinarmun á almennum viðspyrnustyrkjum og því nýja úrræði sem stundum getur tafið það að útgreiðsla eigi sér stað. En markmiðið með þessu öllu saman er að fyrirtækin geti sótt um, úrræðið er byggt þannig upp að þú sækir fyrir viðkomandi mánuð. Ég vonast til þess að í framkvæmd getum við strax unnið upp þennan eldri hala þannig að þegar mánuðirnir sem eru nú óliðnir renna sitt skeið á enda þá sé tiltölulega fljótlega eftir að umsóknir berast hægt að ganga frá þeim.
Ég myndi hvetja til þess að í nefndarvinnu í þessu máli verði gengið eftir skýrari svörum. En ég hef haft uppi væntingar um það að þegar við erum að framlengja eldri úrræði eigi hlutirnir að geta gengið hraðar fyrir sig. Ég verð að segja eins og er að mér fannst við vera komin með nokkuð vel smurða vél, ágætisframkvæmd í þessum málum, þegar þetta úrræði rann sitt skeið undir lok nóvembermánaðar. En það verður samt að játast að það kom kúfur af umsóknum þegar menn áttuðu sig á því að úrræðið væri að klárast. Þess vegna varð nokkur bið á því að allar umsóknir væru afgreiddar vegna nóvembermánaðar.