viðspyrnustyrkir.
Herra forseti. Ég þakka fyrir skýr svör. Í greinargerð þessa frumvarps er, rétt eins og í greinargerð um frumvarp um veitingastyrki, lögð áhersla á að ekki megi aftra tilfærslu framleiðsluþátta milli fyrirtækja og milli atvinnugreina. Við sjáum að ekki hefur verið vilji til að framlengja t.d. hlutabótaleiðina og slík almenn úrræði og ég get ekki séð að ríkisstjórnin hafi verið að flýta sér neitt ofboðslega að tryggja fjárstuðning til fyrirtækjanna sem standa verst.
Í ljósi þessa vil ég spyrja: Er það stefna ríkisstjórnarinnar og er það stefna hæstv. fjármálaráðherra að stuðla að því að fyrirtækjum og störfum fækki í greinum eins og ferðaþjónustu og afþreyingariðnaði og að framleiðsluþáttum sé beint annað? Telur hæstv. fjármálaráðherra æskilegt að fyrirtækjum fækki og það verði þá ákveðin samþjöppun í þeim greinum sem eru að verða fyrir mestum búsifjum vegna Covid?