152. löggjafarþing — 34. fundur,  7. feb. 2022.

viðspyrnustyrkir.

291. mál
[18:08]
Horfa

Jakob Frímann Magnússon (Flf):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsögu sína og svör við spurningum hv. þm. Jóhanns Páls Jóhannssonar. Ég tek undir með hv. þm. Jóhanni Páli Jóhannssyni, það er gríðarlega mikilvægt að hraða afgreiðslu þessara hluta því að margir eru á hnjánum, jafnvel við dauðans dyr, í sínum rekstri eftir þetta ótrúlega fordæmalausa tveggja ára tímabil þar sem skellt hefur verið í lás mánuðum saman, opnað í einhverjar vikur og aftur skellt í lás og öll þau vandræði sem slíku fylgja.

Nú spyr ég, líkt og ég gerði hér fyrir viku þegar þessi mál bar á góma, hvort ekki væri leið að setja besta mann hæstv. ráðherra í að efna til sérstakrar hraðafgreiðslu, undirbúnings, þannig að þetta þurfi ekki að taka hefðbundinn ríkisafgreiðslutíma sem við þekkjum öll að er yfirleitt ekki jafn snöggur og í einkageiranum.

Annars vegar er það þetta og svo hitt sem blasir við okkur: Verðhækkanir á heimsmörkuðum eru af ýmsum ástæðum yfirvofandi og hafa þegar brostið á. Ég spyr hvort hæstv. fjármálaráðherra sjái fram á að geta beitt sér með ráðum og dáð fyrir því að halda hér stöðugleika á okkar örgengi, hvort við getum sammælst um það — hvort það er löglegt eða ekki, það þarf að skoða — með Seðlabankanum að stuðlað verði að eins stöðugu gengi íslensku krónunnar og mögulegt er á þessum viðsjárverðu tímum og að við aukum þar með lífvænleika þeirra fyrirtækja sem standa höllum fæti og auðvitað fólksins í landinu ekki síður.