152. löggjafarþing — 34. fundur,  7. feb. 2022.

viðspyrnustyrkir.

291. mál
[18:19]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég hef enga ástæðu til að ætla að það verði þannig að þetta muni tefja mikið en augljóslega, eftir því sem álagið er meira, þeim mun mannfrekara er að klára öll úrræðin. Ég vísa bara aftur til þess að hægt er að spyrja nánar út í þetta í nefndinni og hef enn væntingar um að þetta geti komið til framkvæmda mjög fljótlega eftir afgreiðslu í þinginu.