viðspyrnustyrkir.
Herra forseti. Nú kemur það fram í endurskoðendaskýrslu ríkisendurskoðanda um ríkisreikning ársins 2020 að ríkið glímir við uppsafnaða tækniskuld og að upplýsingakerfi ríkisstofnana séu komin til ára sinna, að þau séu keyrð í gömlu tækniumhverfi, skrifuð á einhverjum forneskjulegum forritunarmálum. Og ég vil bara spyrja hæstv. ráðherra: Er hæstv. ráðherra sannfærður um að Skatturinn sé nógu sterk stofnun, hvað varðar hugbúnað, fjölda stöðugilda og fjármuni, til að bregðast skjótt við þegar svona aðstæður koma upp, hvort þetta sé ekki eitthvað sem þurfi að skoða nú eftir tvö ár af heimsfaraldri, hvort viðbragðsgeta stofnunarinnar sé nógu sterk?