viðspyrnustyrkir.
Virðulegi forseti. Já, ég myndi kannski fyrst segja að Skatturinn hefur verið til fyrirmyndar mörgum öðrum opinberum stofnunum varðandi tækninýjungar. En heimurinn breytist hratt og án vafa er sú staða komin upp að við verðum að fara að bæta í fjárfestingu í tækni, í tæknilegum innviðum. Ég hef átt fundi með ríkisskattstjóra um þessi efni og hitt starfsfólk frá Skattinum sem hefur sýnt fram á að frekari fjárfestingar í tæknilausnum gætu leitt af sér enn meiri árangur og ávinning fyrir okkur, stóraukið skilvirkni og árangur, t.d. í skatteftirliti, og þess vegna höfum við stutt það mjög eindregið.
Almennt séð held ég að ríkið eigi eftir að fjárfesta mjög víða í tæknilausnum, það er bara spurning hvar maður vill drepa niður fæti. Má ég t.d. benda á að ekki er hægt að fletta því upp hversu margir eru á biðlista hjá Landspítalanum eftir einstaka aðgerðum, það er enginn slíkur biðlisti til neins staðar. Ég er þeirrar skoðunar að við eigum að nota gögn til að taka betri ákvarðanir og fjárfesta í tækni sem muni létta okkur störfin og skila meiri árangri, og það sem kannski mestu skiptir, þegar upp er staðið, betri opinberri þjónustu. En hér var ekki spurt um allt þetta heldur bara um Skattinn. Skatturinn hefur verið til fyrirmyndar en ég held að enn þurfi að fjárfesta þar.