viðspyrnustyrkir.
Virðulegur forseti. Við erum hér með til umræðu frumvarp til laga um breytingu á lögum um viðspyrnustyrki, framhald viðspyrnustyrkja. Það er mjög mikilvægt mál og eitt af þessum málum sem styðja við atvinnugreinar sem hafa undanfarin tvö ár fundið fyrir þessum faraldri sem hefur verið hér í samfélaginu og raunar um heim allan. Málið er til komið, eins og hæstv. fjármálaráðherra fór hér yfir, vegna þessa nýja afbrigðis, ómíkron, sem hefur aðeins breytt stöðunni. Fjármálaráðherra fór ágætlega yfir það hvernig þessi mál hafa þróast hér á síðustu vikum og mánuðum. Málið er einmitt til þess fallið, eins og kemur fram í greinargerð með frumvarpinu, að tryggja að fyrirtæki sem verða fyrir miklu tekjufalli vegna fjölgunar smita, samkomutakmarkana og þeirra aðgerða sem ráðist hefur verið í vegna þessa geti viðhaldið nauðsynlegri þjónustu, lágmarksstarfsemi. og verið tilbúin þegar lífið fer að ganga sinn eðlilega gang, ef svo má segja, eftir faraldurinn. Sem betur fer erum við vonandi farin að sjá ljós við enda ganganna.
En þetta er eitt af þeim málum sem er ætlað að tryggja að þessi fyrirtæki geti tekið aftur upp eðlilega starfsemi þegar sá tími kemur, ein af þessum góðu aðgerðum sem gripið hefur verið til. Ég minntist aðeins á aðgerðir í ræðu undir öðru máli hér áðan en nefna má greiðslu launa í sóttkví, stuðning til veitingaaðila sem hafa þurft að sæta takmörkunum, það er búið að fresta skattgreiðslum. Og svo erum við með til meðferðar í efnahags- og viðskiptanefnd framhald lokunarstyrkja. Þó svo að ég vilji kannski tengja öll þessi mál og blanda þessu saman, virðulegi forseti, þá kom mjög margt áhugavert fram í málinu um framhald lokunarstyrkja. Þar eru kannski einna helst þessi margumræddu fyrirtæki sem hafa þurft að skella algerlega í lás, hafa lokað fyrir starfsemi sína, hafa ekki getað stundað sinn eðlilega atvinnurekstur, selt sína vöru eða þjónustu, hafa þurft að loka öllum hurðum. Þetta eru fyrirtæki sem ég hef haft verulegar áhyggjur af og oft og tíðum eru þetta allra minnstu fyrirtækin. Ég held að það sé rétt hjá mér þegar ég segi að í langflestum tilfellum sé um að ræða litlar krár eða íþróttabari eða pöbba, eins og við þekkjum þá, staði sem sýna leiki um helgar og eru jafnvel með spilasali, sem finna hvað mest fyrir þessu. Það kom fram að þetta eru um 50 aðilar eða fyrirtæki. Hjá þeim sem leitað hafa til mín, og ég veit að fleiri hafa fengið að heyra það, eru ákveðnar áhyggjur af viðmiðum í þessum frumvörpum, þ.e. að styrkurinn eða stuðningurinn sé greiddur út á stöðugildi. Og þegar við ræðum lokunarstyrkjafrumvarpið þá eru það, eins og ég segi, allra minnstu aðilarnir sem hafa þurft að hagræða í sínum rekstri, þurft að skera burt alla fitu og eru jafnvel komnir inn að beini og hafa því miður þurft að hagræða hvað starfsfólk varðar.
Um leið og ég segi þetta hef ég fullan skilning á því að allar aðgerðir stjórnvalda hafa verið á þann veg að styðja við vinnumarkaðinn, styðja við það að fyrirtækin reyni að halda starfsfólki sínu í vinnu. Þarna erum við að mínu mati með hóp sem er að mörgu leyti annars eðlis, lítil fjölskyldufyrirtæki, og ég hef velt því upp, bæði hér áður og í nefndinni, hvort hreinlega væri betra að miða við fastan kostnað, hvernig sem það er gert. Og við erum aðeins að ræða það. Kannski er það ómögulegt en mér finnst að okkur beri skylda til að kanna hvort mögulegt sé að grípa þessa litlu aðila þó svo að langflestir geri sér grein fyrir því að það tekst aldrei að grípa alla.
En aftur að þessu máli um framhald viðspyrnustyrkja sem er nú að fara til nefndarinnar. Ég held að þetta sé mjög gott mál og styðji við aðrar aðgerðir sem ríkisstjórnin hefur gripið til.