störf þingsins.
Virðulegi forseti. Ég ætla að tala hér um störf þingsins. Ég mælti hér í upphafi desember, bara í upphafi þessa þingvetrar og í upphafi nýs kjörtímabils, fyrir frumvarpi um dýravelferð, Bann við blóðmerahaldi. Umsagnarfresturinn rann út 17. janúar. 129 umsagnir bárust, sem er nú svona nálægt því að vera með því meira sem við sjáum hér á hinu háa Alþingi. 236 umsagnir bárust síðan til Umhverfisstofnunar og ef að líkum lætur áttu flestar þeirra, miðað við þær upplýsingar sem ég hef frá Umhverfisstofnun, heima fyrir atvinnuveganefnd því að þær fjölluðu um blóðmerahaldið sjálft.
Málið er risavaxið, en svo einkennilegt sem það er, og ég trúi því ekki fyrr en ég tek á því að það fái ekki frekari og skilvirkari afgreiðslu, að það hefur einungis einu sinni komið fyrir atvinnuveganefnd, einungis einu sinni ratað fyrir atvinnuveganefnd. Það var ekki á dagskrá nefndarinnar í morgun. Það er ekki á dagskrá nefndarinnar á fimmtudaginn kemur. En við, virðulegi forseti, erum með 129 umsagnaraðila sem ég vil leyfa mér að draga í efa að nefndin sé ekki full af vilja til að fá til skrafs og ráðagerða og til að fá að leyfa þeim að fylgja eftir sínum umsögnum með tilliti til þess og að við nefndarmenn fáum tækifæri til að spyrja frekar út í umsagnir þeirra.
Það er í rauninni bágt að finna það hversu veikur maður er í stjórnarandstöðu þótt maður sé fanginn af vilja og vinni eins og ég veit ekki hvað, eins og alvöruhestur sem dregur alvöruþunga á eftir sér til að bæta stöðuna í samfélaginu. Það er sorglegt, virðulegi forseti, ef það er virkilega svo að stjórnvöld heykist við að taka utan um mál sem jafnvel öll þjóðin kallar eftir að fái þinglega meðferð hér. Þannig að ég skora bara á okkur öll í atvinnuveganefnd og hv. formann nefndarinnar, Stefán Vagn Stefánsson, til að taka utan um málið og koma því þannig inn að við getum fjallað um það á lýðræðislegan hátt hér í þingsal.