152. löggjafarþing — 35. fundur,  8. feb. 2022.

störf þingsins.

[13:39]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S):

Forseti. Hinir frábæru þættir Verbúðin minna okkur á margt þessa dagana, bæði gott og slæmt. Þeir minna t.d. á þá furðutíma þegar við máttum ekki drekka bjór og gleðina þegar sú sjálfsagða bót á íslensku samfélagi var loksins leyfð. Það er klassískur brandari að rifja upp varnaðarorðin sem féllu innan þessara veggja þegar það var til umræðu og þykja kannski um margt kostuleg í dag en eru kannski ekki svo ýkja ólík þeim orðum sem falla hér enn þann dag í dag þegar við erum að tala um frjálsa verslun með áfengi. Af þeirri umræðu mætti ætla að það sé lykilatriði fyrir lýðheilsu gegn því böli sem áfengi getur vissulega verið, að það séu engir aðrir en opinberir starfsmenn sem standa við þann búðarkassa, opinberir starfsmenn sem sinna starfi sínu mjög vel og ekkert yfir því að klaga en eru kostaðir af opinberu fé í verðmætu húsnæði um allt land, sem mætti nýta betur fyrir hið opinbera, en ná þrátt fyrir allt ekki að sinna öllum landsmönnum þannig að þeir geti nálgast þessa löglegu neysluvöru í nærumhverfi sínu.

Gott og vel. Það er ákveðinn raunveruleiki að öll frumvörp sem falið hafa í sér útfærslu á því að gera þessa verslun frjálsari hefur dagað uppi. Það er ákveðinn raunveruleiki, en ég vona samt sem áður að sömu óttaslegnu rökin og komu fram fyrir 35 árum um bjórinn fari kannski þverrandi. Að smám saman berum við gæfu til að feta veginn í frelsisátt í skrefum — í sjálfsögðum skrefum, finnst mér, til að mynda með frumvarpi um að undirstrika sjálfsagða löggjöf um netverslun með áfengi hér á landi, sem ég mun leggja fram hér á þingi og vonast eftir góðri umræðu um, til að jafna stöðu innlendrar og erlendrar verslunar að þessu leyti og undirstrika lögmæti innlendrar netverslunar með áfengi.