störf þingsins.
Virðulegur forseti. Þúsundir kaupa lottómiða í þeirri von að komast yfir skjótfenginn gróða. Líkurnar á því að velja réttu lottótölurnar eru ekki miklar en samt taka margir þátt enda oft verið að styrkja gott málefni. Á morgun verða opinberaðar tölur sem þúsundir fjölskyldna bíða eftir en ekki er það í von um skjótfenginn gróða. Reyndar er þetta lotterí þar sem vinningslíkur íslenskra fjölskyldna eru umtalsvert lélegri en fjölskyldna í nágrannalöndunum og ekki nokkur fjölskylda tekur þátt í af fúsum og frjálsum vilja. Á morgun fáum við að vita hversu mikið Seðlabankinn hækkar stýrivexti. Greinendur á markaði eru sammála um að hækkunin verði umtalsverð. Staðan er einfaldlega sú að vaxtahækkanir á Íslandi á tiltölulega stuttu tímabili eru að þurrka út meira en útborguð mánaðarlaun yfir árið hjá manneskju með meðaltekjur og algengt húsnæðislánaform. Þetta á við um þúsundir heimila. Skilaboðin frá hæstv. fjármálaráðherra í gær voru þau að það væri huggun harmi gegn að fólk eigi auðveldara með að endurfjármagna lán.
Hvers konar kerfi er það sem krefst þess af venjulegum fjölskyldum að þær þurfi nánast að halda úti sinni eigin greiningardeild eins og bankarnir til að lágmarka tjón í vaxtaumhverfi krónuhagkerfisins? Er það sanngjarnt að heimilin í landinu þurfi að vera með virka áhættustýringu árið um kring til að verja sína verðmætustu eign? Og sama hvernig heimilin greina og sama hvernig þau stýra, alltaf er niðurstaðan sú að rangar tölur koma upp í þessu lottói og ekki rennur króna til góðs málefnis. Hæstv. fjármálaráðherra sagði einnig í gær að hann teldi raunhæft að á Íslandi gæti vaxtaumhverfið orðið eins og í nágrannalöndunum. Þessi sami fjármálaráðherra hefur stýrt efnahagsmálum þjóðarinnar samfellt frá árinu 2013. Flokkurinn hans hefur stýrt efnahagsmálum þjóðarinnar nánast allan lýðveldistímann. Með sama áframhaldi, með sama hraða, sömu vaxtaþróun og sama gjaldmiðli og undanfarna áratugi má gera ráð fyrir að draumur ráðherrans verði orðinn að veruleika löngu eftir að við öll verðum kominn undir græna torfu. Heimilin í landinu þola ekki þá bið. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)