störf þingsins.
Virðulegur forseti. Nýverið heimsótti ég Seimas, litháíska þingið, og ég flyt hér ákveðið ákall frá þingmönnum í Litháen, ákall um stuðning í þeirra baráttu. Yfirvofandi hætta á frekari innrás Rússa í Úkraínu var auðvitað helsta umræðuefnið. Aukinn vígbúnaður Rússa í Hvíta-Rússlandi er Litháum mikil ógn. Þeir hafa tekið skýra afstöðu með Úkraínu og með lýðræðislegum umbótum í Hvíta-Rússlandi eins og Evrópusambandið, Ísland og allar líkt þenkjandi þjóðir. En Litháar þurfa á stuðningi alþjóðasamfélagsins að halda. Þeir hafa bæði kallað eftir viðveru Bandaríkjahers í landinu og þéttu samstarfi við NATO og Evrópusambandið. Alþjóðlegt samstarf og samvinna skiptir hér lykilmáli. Litháar hafa svo sannarlega ekki gleymt okkur Íslendingum í stuðningi við sjálfstæðisbaráttu þeirra þegar við fyrst ríkja viðurkenndum sjálfstæði þeirra og vinir okkar á Norðurlöndum fylgdu svo í kjölfarið. Fyrir það eru þeir ævinlega þakklátir. En nú kalla þeir eftir frekari stuðningi Íslendinga. Við þurfum að styðja þá í vegferð sinni við að styðja Úkraínumenn og Hvít-Rússa.
Ég vil hvetja íslenska þingmenn til að nýta sér tækifærið í alþjóðastarfi til að tala fyrir mannréttindum, tala fyrir lýðræði og tala fyrir því að alþjóðalög séu ávallt virt.