152. löggjafarþing — 35. fundur,  8. feb. 2022.

störf þingsins.

[13:57]
Horfa

Kristrún Frostadóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Ég vil vekja athygli þingheims á þingsályktunartillögu sem dreift verður síðar í dag þar sem þingflokkur Samfylkingar, auk fulltrúa minni hlutans í fjárlaganefnd, leggur til að fjármálaráðuneytið móti mótvægisaðgerðir til að milda höggið á heimilin í landinu sem blasir við vegna mikillar verðbólgu og vaxtahækkana. Líta þarf til beins fjárhagsstuðnings vegna snarpra breytinga á húsnæðiskostnaði, en einnig gera heimilunum kleift að dreifa auknum kostnaði yfir lengra tímabil. Fordæmin eru nú þegar til staðar erlendis.

Færa má sterk rök fyrir því að núverandi staða í efnahagsmálum, bæði hvað varðar verðbólgu og húsnæðisverðshækkanir, sé til kominn vegna hagstjórnarmistaka af hálfu stjórnvalda í heimsfaraldri, sem gripu of seint til sértækra aðgerða og úthýstu ákvörðunum um dreifingu fjármagns til bankakerfisins og Seðlabankans. Eignaverð hefur rokið upp, þrýst á verðbólgu og nú þarf að snúa olíuskipinu við.

Stjórnvöld vitnuðu ítrekað á undanförnum mánuðum til lágra vaxta vegna vel heppnaðra efnahagsúrræða og bera ábyrgð á því að hafa hvatt fólk til aukinnar skuldsetningar á einstökum tímum í sögu vaxta á Íslandi. Í raun má segja að heimilin í landinu hafi skuldsett sig um 450 milljarða kr. fyrir hvatningu stjórnvalda. Þessi viðbótarskuldsetning hefur orðið til þess að auka óstöðugleika á fjármálamarkaði, líkt og Seðlabankinn hefur varað við, en að sama skapi gert heimilin berskjölduð fyrir hertu aðhaldsstigi í peningastjórnun sem nú blasir við. Mikilvægt er að ríkisstjórnin verði ekki of sein að bregðast við þessum seinni fasa af efnahagsáhrifum kórónukreppunnar þar sem vandinn er fyrst og fremst verðbólga og ójafnvægi í þjóðarbúskapnum. Þessar mótvægisaðgerðir þurfa að vera klárar þegar og ef kallið kemur.