152. löggjafarþing — 35. fundur,  8. feb. 2022.

störf þingsins.

[14:03]
Horfa

Kári Gautason (Vg):

Herra forseti. Byggðastofnun gaf út í desember yfirlit um hagvöxt frá upphafi til loka síðasta hagvaxtarskeiðs, niðurbrotið á landshluta árin 2012–2019. Stórmerkilegt plagg. Það sýnir ekki síst hve hagvextinum hefur verið misskipt á landsvæði. Stóra myndin er þessi: Frá Höfn í Hornafirði að Holtavörðuheiði hefur hagvöxtur verið frá því að vera þriðjungur upp í tvo þriðju af landsmeðaltali. Minnstur var hann á Austurlandi eða 1,6% að meðaltali. Næst þyrfti að greina fjárfestingu niður á landshluta. Niðurstaðan yrði líklega svipuð vegna þess að fjárfesting er forsenda hagvaxtar. Bankar hafa helst áhuga á því að lána fé gegn tryggum veðum. Þess vegna er þörf á Byggðastofnun sem lánar á forsendum byggða- og atvinnuþróunar. Markmið hennar er m.a. að efla byggð og atvinnulíf með sérstakri áherslu á jöfnun tækifæra allra landsmanna til atvinnu og búsetu. Bankarnir reka sig á vaxtamun og þjónustugjöldum en Byggðastofnun þarf að stórum hluta að reka starfsemi sína á vaxtamun. En er það ekki í mótsögn við markmiðin að láta þá sem taka lán, sem aðallega eru aðilar úr veikari byggðum, greiða fyrir jöfnun tækifæra allra landsmanna?

Lengi hefur verið talað um jafnvægi í byggð landsins en eins og Lúðvík Jósepsson þreyttist t.d. ekki á að ræða hér á Alþingi, og lesa má um í þingtíðindum, er það tómt mál og innihaldslaust ef ekki er hægt, með leyfi forseta, „að lána fé til framkvæmda þar, sem þess er þörf til þess að tryggja þar atvinnu og örugga lífsafkomu“. Með tiltölulega hóflegri aukningu á framlagi til Byggðastofnunar mætti lækka útlánavexti hennar og gera þannig fjárfestingarkosti raunhæfa á þeim hlutum landsbyggðarinnar sem þurfa sárlega á hagvexti að halda. Það yrði lífakkeri fyrir smærri byggðir sem víða eiga í vök að verjast.