Bráðabirgðaútgáfa.

152. löggjafarþing — 35. fundur,  8. feb. 2022.

ákvörðun nr. 50/2021 um breytingu á IX. viðauka við EES-samninginn.

198. mál
[14:09]
Horfa

Frsm. utanrmn. (Njáll Trausti Friðbertsson) (S):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti frá utanríkismálanefnd um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 50/2020 um breytingu á IX. viðauka við EES-samninginn, þ.e. fjármálaþjónustu.

Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti úr á fjármálaráðuneytinu og utanríkisráðuneytinu.

Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 50/2021 um breytingu á IX. viðauka við EES-samninginn og fella inn í samninginn reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/834 frá 20. maí 2019 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 648/2012 að því er varðar stöðustofnunarskyldu, frestun á stöðustofnunarskyldu, kröfur um skýrslugjöf, aðferðir til mildunar áhættu fyrir OTC-afleiðusamninga sem miðlægur mótaðili stöðustofnar ekki, skráningu og eftirlit með afleiðuviðskiptaskrám og kröfur fyrir afleiðuviðskiptaskrár.

Framsetning tillögunnar telst að mati nefndarinnar í samræmi við 7. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála.

Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.

Jakob Frímann Magnússon og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Gísli Rafn Ólafsson, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, er samþykkur áliti þessu.

Undir álitið skrifa hv. þingmenn Bjarni Jónsson, Diljá Mist Einarsdóttir, Birgir Þórarinsson, Jóhann Friðrik Friðriksson, Logi Einarsson, Njáll Trausti Friðbertsson og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.