152. löggjafarþing — 35. fundur,  8. feb. 2022.

ákvörðun um breytingu á II. viðauka við EES-samninginn.

248. mál
[14:11]
Horfa

Frsm. utanrmn. (Bjarni Jónsson) (Vg):

Herra forseti. Ég ætla að kynna hér nefndarálit með breytingartillögu um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) við EES-samninginn (lífræn framleiðsla).

Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Iðunni Guðjónsdóttur frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti og Ingólf Friðriksson og Ernu S. Hallgrímsdóttur frá utanríkisráðuneyti.

Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) við EES-samninginn (lífræn framleiðsla) og fella inn í samninginn annars vegar reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/848 frá 30. maí 2018 um lífræna framleiðslu og merkingu lífrænt ræktaðra vara og um niðurfellingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 834/2007 og hins vegar reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2020/1693 frá 11. nóvember 2020 um breytingu á reglugerð (ESB) 2018/848 um lífræna framleiðslu og merkingu lífrænt ræktaðra vara að því er varðar daginn þegar hún kemur til framkvæmda og tilteknar aðrar dagsetningar sem um getur í þeirri reglugerð.

Framsetning tillögunnar telst að mati nefndarinnar í samræmi við 7. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála.

Nefndin leggur til breytingu þannig að númer ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar komi fram í tillögugrein og fyrirsögn málsins. Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt með eftirfarandi:

a. Á eftir orðunum „ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar“ í 1. málsl. tillögugreinar komi: nr. 31/2022.

b. Fyrirsögn tillögunnar orðist svo: Tillaga til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 31/2022 um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) við EES-samninginn (lífræn framleiðsla).