um fundarstjórn.
Herra forseti. Það er bara eiginlega ekki hægt að sleppa því að koma upp og vekja athygli á því að það er verið að samþykkja stjórnarfrumvarp, rekstrarstuðning við fyrirtæki, og það er ekki einn einasti ráðherra sem mætir til að greiða atkvæði um stjórnarfrumvarp. (Gripið fram í: 19 þingmenn meiri hlutans eru í húsi.) (Gripið fram í: Við getum fellt þetta allt saman …) Og samkvæmt því sem ég heyri hér utan úr sal þá hirðir meiri hlutinn ekki einu sinni um það að mæta þannig til leiks að þau tryggi að mál þeirra séu samþykkt. Þau reiða sig á stjórnarandstöðuna.
Nú vill þannig til að þetta er mál sem við styðjum. En þetta er til háborinnar skammar og ef einhver ráðherra skyldi nú vera við sjónvarpstækið og fylgjast með þessu þá er hann beðinn um að drífa sig hingað niður eftir. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)