um fundarstjórn.
Herra forseti. Þegar maður heldur að botninum sé náð þá er haldið áfram að grafa. Það var alveg ljóst í upphafi þessa kjörtímabils að ríkisstjórnin hafði lagt af öll fögur áform um eflingu þingsins; þau sem svo fjálglega var talað um í fyrri umferð stjórnarflokkanna þó að vissulega hafi meira verið um orð en efndir. Mig langar til að segja eitt, svo það sé algerlega á hreinu, fyrir ráðherra ríkisstjórnarinnar, fyrir stjórnarþingmenn og fyrir alla áhugasama: Þessi vanvirðing, að hér mæti ekki einn ráðherra í atkvæðagreiðslu, er ekki vanvirðing við stjórnarandstöðuþingmenn. Þetta er vanvirðing við Alþingi.