152. löggjafarþing — 35. fundur,  8. feb. 2022.

um fundarstjórn.

[14:23]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Herra forseti. Það er kannski rétt að við höldum þessu gangandi aðeins áfram svo ráðherrarnir fara að tínast hérna inn einn af öðrum. Það er náttúrlega vandræðalegt að horfa hér á galtóma ráðherrabekki þegar við erum að samþykkja stjórnarfrumvarp sem stjórnin heldur fram að sýni að henni sé ekki alveg sama um atvinnulífið á tímum Covid. Það er hægt að sýna þann stuðning í verki með því að sitja hér í salnum og vera með okkur í að samþykkja mál. 18 þingmenn stjórnarflokkanna greiddu atkvæði hér áðan og 18 þingmenn stjórnarandstöðu, 7 þingmenn stjórnarandstöðu voru fjarverandi en 21 stjórnarliði. Þessi hlutföll lýsa, eins og hv. þm. Hanna Katrín Friðriksson sagði, lítilsvirðingu gagnvart almenningi sem við eigum að þjóna, lítilsvirðingu gagnvart fólkinu sem ríkisstjórnin á að starfa í umboði fyrir, lítilsvirðingu gagnvart Alþingi og öllum verkum ríkisstjórnarinnar líka. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)