um fundarstjórn.
Virðulegi forseti. Ég fagna því að sjá ráðherra einn af öðrum tínast inn í salinn en þetta er auðvitað hluti af stærri mynd sem er sú að núna erum við afgreiða veitingastyrkjafrumvarpið en í dag kom í ljós að í ljósi þess að hæstv. fjármálaráðherra gat ekki komið hingað í þingið og flutt frumvarpið um viðspyrnustyrkina í síðustu viku þá eru allar líkur á því að frumvarpið verði ekki afgreitt út úr þinginu fyrr en einhvern tímann eftir kjördæmaviku. Styrkirnir munu ekki skila sér fyrr en eftir margar vikur ef ekki mánuði. Það að ráðherrar geti ekki einu sinni sýnt fólkinu sem er verið að styðja við þá virðingu að vera hérna með okkur í salnum og greiða atkvæði um þetta mál — þetta er hálfömurlegt framhald af þessu sem ég var að nefna.