152. löggjafarþing — 35. fundur,  8. feb. 2022.

um fundarstjórn.

[14:26]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Mér sýnist ráðherrarnir tínast hér inn hver á fætur öðrum þannig að ef við tölum bara nógu lengi í dag þá koma þeir allir. Það var 18:18 áðan, eiginlega fellt á jöfnu — en það er ekki rétt, ég gleymdi nefnilega að greiða atkvæði. Þá hefði það verið 19:18, svo ég verð víst að leiðrétta það. En þetta sýnir svart á hvítu hvernig ríkisstjórnin tekur á sínum eigin málum.