152. löggjafarþing — 35. fundur, 8. feb. 2022.
um fundarstjórn.
Forseti. Ráðherrar eru þingmenn, taka sér líka stöðu í ráðuneytum sem þingmenn. Það hafa komið einn til tveir ráðherrar í hvert skipti sem einhver úr stjórnarandstöðunni kemur og leyfir þeim að fá smáaukatíma til að hlaupa hingað upp í salinn. Ég held að það sé ráð að einhverjir stjórnarþingmenn komi hingað og útskýri fyrir okkur af hverju þeir eru svona fáliðaðir. Þá koma kannski tveir ráðherrar og þetta verður orðið fullmannað, vonandi, þegar fólk er búið að tæma málið hérna.