152. löggjafarþing — 35. fundur,  8. feb. 2022.

um fundarstjórn.

[14:27]
Horfa

Óli Björn Kárason (S):

Herra forseti. Það er ekki óeðlilegt að gerðar séu athugasemdir við að það vanti hér ráðherra í atkvæðagreiðslu. Ég verð hins vegar að taka þann kaleik og drekka hann vegna þess að ég stóð í þeirri trú að atkvæðagreiðslan yrði kl. 14:30 og ég gaf mínum ráðherrum þær upplýsingar og ég veit að félagar mínir í Framsóknarflokki og Vinstrihreyfingunni – grænu framboði gáfu sínum ráðherrum þessar upplýsingar einnig, þannig að það er ekki meira um það að segja. En svona er þetta. Það er alveg ljóst að ráðherrarnir þurfa líka að sinna embættisskyldum sínum, eru störfum hlaðnir og ætluðu að mæta hér hver af öðrum einmitt kl. 14:30, þ.e. þeir sem á annað borð voru ekki annars staðar.