um fundarstjórn.
Herra forseti. Það er engu að síður mjög sérstakt, svo ekki sé meira sagt, að enginn ráðherra hafi greitt atkvæði um þetta mikilvæga stjórnarmál, Mig langar bara að spyrja herra forseta hvort aðrar samskiptareglur gildi um stjórnarliða og stjórnarandstöðu eða jafnvel ráðherra og þingmenn, vegna þess að við hin þurfum ekki nefnilega að reiða okkur á hv. þm. Óla Björn Kárason, heldur fáum skilaboð í símann okkar og högum okkur samkvæmt því. Og ef það er ekki þannig þá bið ég hæstv. forseta að beita sér fyrir því að ráðherrar fái líka SMS-skilaboð eins og við þingmenn.