fjarskipti o.fl.
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir í nefndaráliti meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar í máli nr. 169, sem er frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjarskipti, lögum um Fjarskiptastofu og lögum um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri. Nefndin hefur fjallað um málið og nefndarálit liggur frammi. Með frumvarpinu eru lagðar til ýmsar breytingar. Þær helstu eru að gerðar verði ítarlegri kröfur til fjarskiptafyrirtækja um áhættustýringu og viðbúnað, að lögfest verði ákvæði um staðsetningu kerfa og búnaðar í fjarskiptanetum og að skýrar verði kveðið á um eftirlitsheimildir Fjarskiptastofu og hlutverk hennar sem snýr að almannahagsmunum og þjóðaröryggi. Þá er lagt til að ráðherra geti bundið erlenda fjárfestingu í atvinnurekstri skilyrðum til að koma í veg fyrir að hún ógni öryggi landsins, gangi gegn allsherjarreglu og almannaöryggi.
Nefndin fjallaði m.a. um heildarendurskoðun fjarskiptalaga og um það atriði tekur meiri hlutinn undir með ráðuneytinu að með þessu frumvarpi séu stigin mikilvæg skref til að bæta lagaumgjörð um almannahagsmuni og þjóðaröryggi á sviði fjarskipta. Meiri hlutinn telur þó rétt að nokkur atriði bíði heildarendurskoðunar. Þá fjallaði nefndin um löggjöf um neyðar- og öryggisfjarskipti þar sem nefndinni bárust ábendingar um að nauðsynlegt væri að setja löggjöf um neyðar- og öryggisfjarskipti. Meiri hlutinn tekur undir sjónarmiðin og beinir því til ráðuneytisins að taka málið til skoðunar.
Nefndin fjallaði að auki um staðsetningarskyldu, en með frumvarpinu er ráðherra veitt heimild til að kveða á um staðsetningarskyldu búnaðar og kerfa fjarskiptaneta í ákveðnum tilfellum. Ábendingar bárust um að ákvæðið væri of víðtækt og að betra væri að kveða á um skylduna í lögum. Meiri hlutinn fellst ekki á þau sjónarmið og bendir á að vandmeðfarið sé að lögfesta skylduna, enda varðar hún tækni sem er síbreytileg og í örri þróun, auk þess sem heimild ráðherra er skýrt afmörkuð.
Herra forseti. Mig langar að vísa í nefndarálit meiri hluta nefndarinnar, í kaflann um staðsetningarskyldu, og það sem þar stendur í tengslum við staðsetningarskyldu búnaðar og fjarskipta:
„Samkvæmt 2. gr. frumvarpsins getur ráðherra í reglugerð kveðið á um að kerfi og búnaður í fjarskiptanetum, sem teljast mikilvæg með tilliti til almannahagsmuna og þjóðaröryggis, og er nauðsynlegur fyrir virkni eða stjórnun fjarskipta innan landsins skuli staðsettur í íslenskri lögsögu. Skilyrði þessa er að ráðherra hafi fengið umsagnir frá Fjarskiptastofu og ríkislögreglustjóra. Í reglugerðinni getur ráðherra einnig kveðið á um að rekstur slíks búnaðar og kerfa skuli fara fram í íslenskri lögsögu, þar með talið umsjón og eftirlit með virkni og ástandi fjarskiptaneta. Á fundum nefndarinnar komu fram sjónarmið um að ákvæðið væri of opið og athugunarefni hvort í því fælist of víðtækt framsal löggjafarvalds til ráðherra. Nærtækara væri að kveða á um staðsetningarskyldu í lögum.“
Nefndin tekur ekki undir þau sjónarmið og bendir á að vandmeðfarið sé að lögfesta slíka skyldu. Málefnalegar ástæður geta verið fyrir því að fjarskiptabúnaður og kerfi sem varðar virkni eða stjórnun fjarskipta séu staðsett utan íslenskrar lögsögu, bæði efnahagslegar, fjárhagslegar sem og tæknilegar. Notkun á skýjavinnsluþjónustu erlendra þjónustuaðila er skýrt dæmi um slíkt. Sérstakar kröfur eru gerðar til slíkrar útvistunar, sbr. 2. mgr. 1. gr. frumvarpsins. Lögfesting á skyldu til að staðsetja tiltekinn fjarskiptabúnað, kerfi eða rekstur þeirra í íslenskri lögsögu getur takmarkað slíka útvistunarmöguleika umfram þær kröfur og gæta þarf að meðalhófsreglu. Hins vegar kann að koma upp sú staða út frá áhættumati, jafnvel með skömmum fyrirvara, að óhjákvæmilegt teljist að grípa til þess úrræðis að gera kröfu um að tiltekinn fjarskiptabúnaður, kerfi eða rekstur skuli staðsettur í íslenskri lögsögu, enda varði það verulega almannahagsmuni eða þjóðaröryggi. Til grundvallar slíkri ákvörðun lægi áhættumat sem fæli í sér skýra afmörkun þess sem staðsetningarkrafan yrði gerð til. Þar sem slíkt áhættumat tekur stöðugum breytingum vegna þátta eins og tækniframfara, netógna og viðbragðsáætlana er lögfesting á afmörkun þess sem staðsetningarskylda yrði gerð um, afar erfið og tæki örum breytingum. Meðal annars af framangreindum ástæðum má telja heppilegra að mælt sé fyrir um heimild ráðherra til að kveða á um staðsetningarskyldu og útfærslu hennar í reglugerð frekar en að hún sé lögfest. Þá telur nefndin að reglugerðarákvæðið sé þannig útfært að nægilega skýrt sé kveðið á um umfang og takmörk þeirrar skyldu sem um ræðir.
Nefndin áréttar að um er að ræða vandmeðfarna heimild ráðherra sem einungis skal grípa til á grundvelli ítarlegs áhættumats og að viðhöfðu samráði við alla helstu haghafa.
Meiri hlutinn leggur til nokkrar breytingar á frumvarpinu og lögð er til breyting er varðar útvistun á afmörkuðum þáttum í starfsemi fjarskiptafyrirtækja — ég fór í gegnum kaflann í álitinu um staðsetningarskylduna. Fyrir nefndinni var gagnrýnt að orðalag 1. og 2. mgr. 1. gr. væri of almennt. Ákvæðið felur í sér kvaðir á starfsemi fjarskiptafyrirtækja og er mikilvægt að þær séu skýrt afmarkaðar og ekki umfangsmeiri en þörf er á með hliðsjón af almannahagsmunum og þjóðaröryggi. Kröfur vegna útvistunar eru aðallega mikilvægar að því er varðar þætti í starfsemi fjarskiptafyrirtækis sem nauðsynlegir eru fyrir virkni, vernd eða stjórnun fjarskipta, þ.e. þjónustu og kerfi eða net sem hafa áhrif á rekstrarsamfellu fjarskiptanets eða fjarskiptaleynd. Lögð er til breyting á orðalagi því til samræmis. Fyrir nefndinni kom fram gagnrýni á þá skyldu fjarskiptafyrirtækja skv. 2. mgr. að eiga eða geta fært útvistaða starfsemi undir íslenska lögsögu og að fyrirtæki skuli grípa til slíkra ráðstafana eins fljótt og mögulegt er ef ákveðin hætta er talin vera fyrir hendi sem varði almannahagsmuni eða þjóðaröryggi.
Með vísan til meðalhófssjónarmiða telur meiri hlutinn rétt að leggja til breytingar á 2. mgr. 1. gr. frumvarpsins þannig að fjarskiptafyrirtæki hafi meira svigrúm til þess að meta sjálft hvernig best sé að bregðast við annars vegar yfirvofandi hættu gagnvart rekstrarsamfellu eða fjarskiptaleynd og hins vegar rofi á þessum þáttum.
Í öðru lagi leggur meiri hlutinn til breytingar er varða úttektir, prófanir og kostnað. Í frumvarpinu er að finna heimild fyrir Fjarskiptastofu til að gera kröfu um að utanaðkomandi aðili geri úttektir og prófanir á því hvort fjarskiptafyrirtæki uppfylli kröfur laganna er varða upplýsingaöryggi og virkni fjarskiptaneta og fjarskiptaþjónustu. Þá skuli kostnaður vegna úttekta og prófana vera greiddur af viðkomandi fjarskiptafyrirtæki. Við umfjöllun nefndarinnar voru gerðar miklar athugasemdir við ákvæðið og orðalag þess. Hvergi í því væri að finna takmörkun á umfangi eða kostnaði vegna slíks eftirlits. Að mati meiri hlutans er þörf á því að ákvæðið fái frekari skoðun við undirbúning framlagningar eða þinglega meðferð frumvarps til heildarlaga um fjarskipti og leggur meiri hlutinn því til að ákvæðið falli brott.
Þá leggur meiri hlutinn til breytingu er varðar ákvæði frumvarpsins um stjórnvaldssektir. Í c-lið 4. gr. er ný heimild Fjarskiptastofu til að leggja á stjórnvaldssektir vegna brota gegn skyldu til að afhenda stofnuninni réttar, fullnægjandi og uppfærðar upplýsingar samkvæmt nánar tilgreindum ákvæðum laga um Fjarskiptastofu. Stjórnvaldssektin getur numið allt að 4% af heildarveltu síðasta rekstrarárs. Á fundum nefndarinnar kom fram mikil gagnrýni á ákvæðið. Fjárhæðin væri hvergi rökstudd í greinargerð auk þess sem stjórnvaldssektir væru refsikennd viðurlög og yrði því að gera ríkar kröfur um skýrleika slíkra ákvæða en ljóst væri að það hvenær upplýsingar væru fullnægjandi eða réttar væri háð mati hverju sinni. Einnig var bent á að stjórnvaldssektir eru ekki hefðbundin eftirlitsúrræði og væri eðlilegra að leggja á dagsektir til að knýja á um þær upplýsingar sem óskað er eftir fremur en stjórnvaldssektir en sú heimild er nú þegar í lögum um Fjarskiptastofu.
Meðal annars með hliðsjón af kröfum um skýrleika refsiheimilda telur meiri hlutinn rétt að lögfestingu þessa ákvæðis verði frestað og komi til frekari skoðunar við undirbúning framlagningar eða þinglega meðferð frumvarps til heildarlaga um fjarskipti.
Vísast að öðru leyti til ítarlegrar umfjöllunar og breytingartillögu meiri hlutans í nefndarálitinu sem liggur fyrir.
Meiri hlutinn leggur til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir. Undir nefndarálitið rita sá sem hér stendur, Njáll Trausti Friðbertsson, Vilhjálmur Árnason, Halla Signý Kristjánsdóttir, Bjarni Jónsson, Orri Páll Jóhannsson og Líneik Anna Sævarsdóttir.