fjarskipti o.fl.
Herra forseti. Málið sem við ræðum hér snýst um öryggi, almannaheill og þjóðaröryggishagsmuni. Við höfum kannski ekki hugmynd um það í dag en slík mál gætu komið upp á næstu vikum sem tengjast því sem við ræðum hér. Það er rétt að Samkeppniseftirlitið hefur ekki sagt hvernig það ætlar nákvæmlega að takast á við málið. Það kemur þá væntanlega í ljós, við fáum að heyra það frá Samkeppniseftirlitinu. En þetta mál er bara almenn löggjöf sem snertir áfallaþol fjarskiptaþjónustu og fjarskiptaneta í grunninn, sem er þjóðaröryggisvinkill. Við tökum síðan það sem snýr að neytendamálum og öðrum málum, samkeppnisþættinum varðandi umsögn Samkeppniseftirlitsins, sektum, stjórnvaldssektum eða dagsektum eða hvaða leiðir við förum, fyrir í stóra málinu, sem ég reikna með, eins og ég sagði áðan, að komi inn í þingið á næstu örfáu vikum.