fjarskipti o.fl.
Herra forseti. Við drögum það fram í nefndarálitinu, varðandi valdheimildir ráðherra, að varlega skuli farið með þær. Þar þurfa ríkir hagsmunir að liggja fyrir sem snúa að ákveðnum þáttum, eins og þjóðaröryggi og almannaheill. Ráðherra þarf því að gæta þeirra sjónarmiða mjög sterkt og það er mjög mikilvægt. Ég get alveg tekið undir þessa gagnrýni enda var ég í hópi þeirra þingmanna sem vildu klára þetta mál í júní í fyrra og lagði mikla áherslu á það. Þetta er stórt og mikilvægt mál, fjarskiptalögin, grunnmál, og hefur verið í NATO-þinginu nú í fjögur ár. Þá þekkir maður orðið vel alla umræðu sem snýr að þessu milli landa og innan landa, sem snýr að fjarskiptaöryggi. Það skilgreina allar þjóðir þetta sem þjóðaröryggismál. Þetta er eiginlega orðið grunnurinn að öllu saman.
Ég skil alveg gagnrýni sem snýr að því að það er ákveðinn hringlandaháttur í málinu og um það má ræða. En þá get ég líka sagt: Við viljum klára þennan þátt. Eins og ég sagði áðan geta komið einhver nýir aðilar, nýir samningar sem snúa með einhverjum hætti að þessu. Við munum aldrei vita það fyrir fram hvernig að málum verður staðið og hvað getur komið upp. Ef svo skyldi fara að við klárum ekki stóra málið fyrir sumarið, ef sú staða kæmi upp, sem við vitum aldrei og af fyrri reynslu geta mál tafist, við þekkjum það, myndi maður alltaf vilja vera búinn að klára þennan þátt máls, svo ég tali opinskátt um það. Það er gríðarlega mikilvægt að klára þennan þátt málsins.