152. löggjafarþing — 35. fundur,  8. feb. 2022.

fjarskipti o.fl.

169. mál
[14:55]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir andsvarið og fyrir að vera heiðarlegur í stöðunni, ég man nákvæmlega eftir baráttu hv. þingmanns varðandi þetta mál. En lokaorð þingmannsins eru kannski upptakturinn að næstu spurningu hjá mér: Getur verið að verið sé að fara í þennan bútasaum með akkúrat þetta tiltekna mál þó að það klári ekki öryggismálin? Ég er á því að þetta klári ekki öryggsmálin, þetta klárar bara tiltekinn anga sem tengist þessari sölu. Við erum með mun flóknari og víðtækari öryggismál undir, þjóðarhagsmuni, þegar kemur að fjarskiptunum. Getur verið að flýtirinn sé þessi vegna þess að innst inni er hætta á því, í huga stjórnarflokkanna þriggja, að þeir muni ekki ná fjarskiptalögunum í gegn? Ekki í vor, ekki næsta ár og mögulega ekki síðar? Þá komum við að því sem ég hef líka áhyggjur af — það þýðir ekki að ég hafi ekki mjög miklar áhyggjur af þessu máli — og það er neytendavinkillinn. Þetta er risastórt neytendahagsmunamál. Það er skilið eftir núna af því að það á að klára. Erum við mögulega að draga tennurnar úr því að fjarskiptalögin verði skoðuð í heild með því að taka þennan bút út úr? Mig langar að heyra vangaveltur hv. þingmanns um það.