152. löggjafarþing — 35. fundur,  8. feb. 2022.

fjarskipti o.fl.

169. mál
[14:56]
Horfa

Frsm. meiri hluta um.- og samgn. (Njáll Trausti Friðbertsson) (S) (andsvar):

Herra forseti. Eins og ég sagði í síðasta andsvari þá er það bara nákvæmlega þannig að við þurfum að klára það mál sem við erum að takast á við hér og það kemur fram í frumvarpinu hvað við erum að fást við. Neytendaöryggi var hluti af Kóðanum eða stóra fjarskiptafrumvarpinu. Ég get bara sagt: Við verðum að klára stóra málið fyrir þinglok. Ég hef satt að segja mikla trú á að það muni ganga eftir. Ég held að við séum alveg komin þangað, ég held að þingmenn og stjórnvöld geri sér almennt grein fyrir mikilvægi þess að það mál klárist, stóra málið sem snýr að fjarskiptalögunum. Eins og ég sagði áðan er þetta grundvallarmál. Þetta eru grunninnviðir hverrar þjóðar í dag og í fjórðu iðnbyltingunni, því sem horfum fram á þar, gengur þróun samfélaga í raun út á þetta. Ég held áfram að tala opinskátt um það að við getum varla annað en klárað málið fyrir júnílok og (Forseti hringir.) ég mun persónulega leggja mitt lóð á vogarskálarnar til að það takist og verði unnið vel.