fjarskipti o.fl.
Herra forseti. Það er áhugavert að lesa greinargerð frumvarpsins því að það er eins og ráðuneytið hafi verið í leiknum Frúin í Hamborg. Þetta mál var lagt fram í hvínandi hvelli, þá kölluðum við það Mílumálið. Það átti að afgreiðast á einni viku rétt fyrir jól vegna þess að það var verið að selja Mílu. En í greinargerð frumvarpsins er ekki minnst á Mílu, það er bara talað eins og um sé að ræða almenna breytingu á lögum sem fólki hafi bara allt í einu dottið í hug að þyrfti að eiga sér stað. Eins og komið hefur fram hefðum við ekki verið í þessari stöðu ef stjórnarflokkarnir hefðu ekki staðið í vegi hver fyrir öðrum með að klára stóra fjarskiptafrumvarpið síðasta vor.
Mig langar að spyrja hv. þingmann, vegna þess að það er sama þó að við reynum að tala í kringum það þá er þetta mál til komið vegna sölunnar á Mílu: Er það ekki svo að sá löggerningur er þegar gerður, að hvaða breytingar sem þetta frumvarp gerir á lögum muni það ekki hafa nein takmarkandi áhrif varðandi viðskipti Símans með Mílu? Þá erum við aftur komin að spurningunni: Til hvers er þá þetta Mílufrumvarp, ef það nær ekki yfir viðskiptin með Mílu?