152. löggjafarþing — 35. fundur,  8. feb. 2022.

fjarskipti o.fl.

169. mál
[14:59]
Horfa

Frsm. meiri hluta um.- og samgn. (Njáll Trausti Friðbertsson) (S) (andsvar):

Forseti. Við erum búin að ræða stóra frumvarpið síðan þingfundur var síðast. Það er rétt og það er gríðarlega mikilvægt að þetta náist. Við erum búin að fara í gegnum það nokkrum sinnum í andsvörum. Varðandi Mílumálið, eða það sem þingmaðurinn nefnir, þá erum við auðvitað að setja almenna löggjöf um hlutina. Eins og ég kom inn á áðan gætu alveg skapast þær aðstæður, við höfum bara ekki hugmynd um það, að við þyrftum að grípa til þessara laga. Það er náttúrlega eðlilegast að það sé einhver löggjöf á bak við það sem við erum að fást við í jafn stórum málum og þessu. Ef ég man rétt þá gildir samningurinn sem Míla gerði við stjórnvöld, ríkið, í tvö ár. Þá ákváðum við að við ætluðum aldeilis að vera búin að klára þetta á þeim tíma, ég ætla rétt að vona það. En við viljum alltaf hafa almenna löggjöf um hlutina. Að einhverju leyti erum við í þessari löggjöf að takast á við það sem fram kemur í samningnum, það sem við höfum séð af honum opinberlega, en ég reikna með að síðan sé örugglega hægt að finna einhverja þætti sem færu kannski að einhverju leyti inn í stóra fjarskiptamálið, í Kóðann. En eins og ég hef nokkrum sinnum komið inn á hér þá erum við bara að tryggja almenna löggjöf um þessa hluti ef fleiri dæmi skyldu koma upp um þetta, almenna löggjöf í landinu. Það er náttúrlega það sem við sem hér sitjum hljótum að gera, að setja hlutina þannig upp. Við erum alltaf að eiga við hluti almennt og sjá til þess að meðalhóf gildi og allt sem því fylgir, að löggjöf sé til staðar til að takast efnislega á við svona mál. Það er rétt að ég barðist mjög fyrir því að málið yrði klárað síðasta vor, til þess nákvæmlega að ná utan um svona hluti.