152. löggjafarþing — 35. fundur,  8. feb. 2022.

fjarskipti o.fl.

169. mál
[15:02]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það liggur eiginlega í hlutarins eðli að ef þetta frumvarp verður að lögum þá er það almenn löggjöf. Frumvarpið er hins vegar mjög sértækt af því að það verður til út frá sölu á einu fyrirtæki, en þessi almenna löggjöf mun ná utan um allt annað en akkúrat samninginn sem varð tilefni frumvarpsins. Það er það sem við virðumst nokkur vera að klóra okkur í kollinum yfir hér í dag; þeirri stöðu að frumvarpið þjónar öllum öðrum tilgangi en nákvæmlega þeim sem það var lagt fram til að þjóna. Ég velti fyrir mér, af því að við hv. þingmaður erum báðir raunsæismenn og áttum okkur á því að stóra fjarskiptamálið mun mögulega ekki klárast á þessu þingi frekar en á þeim tveim síðustu, hvort við ættum kannski, frekar en að klára þennan stubb núna, að geyma okkur hann, að vísa honum til nefndar eftir 2. umr. og eiga hann á lager ef við þurfum að grípa til hans, ef fjarskiptalögin stóru stranda á endanum, hvort það væri hyggilegasta varúðarráðstöfunin í stöðunni.