fjarskipti o.fl.
Herra forseti. Nú endurtek ég það örugglega í þriðja eða fjórða skipti að við erum að setja lög til að geta tekist á við það ef svipuð tilvik koma upp, eða eitthvað í tengingu við þessa löggjöf, sem við höfum ekki hugmynd um hvað gæti orðið. Ég held að við sem sitjum hér á þingi séum oft að fást við veruleika dagsins. Það koma upp aðstæður á mörgum sviðum sem löggjöfin nær ekki yfir og það þarf að takast á við það. Það er nú það sem við, löggjafarþingið, erum æðioft að fást við, bara almennt í þingstörfum. Ég ætla ekki að segja að þessi löggjöf eða stóra fjarskiptafrumvarpið nái yfir allt sem hugsanlega getur komið upp á næstu árum. En einhvers staðar verða menn að byrja og klára verkefnin. Ef við færum að fresta þessu núna sætum við uppi með ákveðinn vanda sem tengist þeim grundvallarhagsmunum sem snúa að áfallaþoli í fjarskiptanetum og kerfum, okkar grunninnviðum. Ég tel því eðlilegt að við klárum málið og séum þá búin að bregðast við því ástandi sem mögulega gæti komið upp.