fjarskipti o.fl.
Forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti með breytingartillögu frá 1. minni hluta umhverfis- og samgöngunefndar. Þeir sem leggja fram breytingartillöguna eru sú sem hér stendur og hv. þm. Andrés Ingi Jónsson.
Fyrsti minni hluti telur mikilvægt að gera breytingar á lögum um fjarskipti, lögum um fjarskiptastofu og lögum um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri er varðar áfallaþol fjarskiptaþjónustu og fjarskiptaneta, en telur nauðsynlegt að tryggja einnig hagsmuni neytenda í samræmi við innihald ákvæðis 57. gr. í frumvarpi til nýrra fjarskiptalaga sem lagt var fram tvívegis á síðasta kjörtímabili, en stjórnarflokkarnir þrír sem skipa núverandi ríkisstjórn komu sér ekki saman um að afgreiða.
Í aðdraganda sölu Mílu voru umfangsmikil og nauðsynleg fjarskiptakerfi flutt frá Símanum til Mílu sem þá bættust ofan á það grunnnet fjarskipta sem Míla átti. Lóðrétt samþætting innan eins fyrirtækis er því umfangsmeiri innan Mílu nú en sést hefur á íslenskum fjarskiptamarkaði frá því að Míla var stofnuð. Frekari og umfangsmeiri slík samþætting er hugsanleg og það í nánustu framtíð, og jafnvel líkleg þar sem tvö fjarskiptafyrirtæki í landinu, Sýn og Nova, hafa þegar selt hluta sinna innviða og annað þeirra lýst opinberlega yfir áformum um frekari sölu á slíkum búnaði.
Upplýst er að hluti sölusamnings Símans á Mílu til Ardian er 20 ára samningur um afnot Símans af kerfum Mílu. Sá samningur kann að vera þess eðlis að um lóðrétta samþættingu á markaði sé að ræða, þrátt fyrir mismunandi eignarhald á Símanum og Mílu. Þetta sjónarmið kemur fram í úrskurði úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála nr. 3/2021. Það hefur með öðrum orðum, herra forseti, verið fjallað um þetta af þar til bærum yfirvöldum. Þar hefur þessu áhyggjuefni verið flaggað.
Símasamstæðan hefur starfað undir sérstökum sáttargerðum við Samkeppniseftirlitið frá árunum 2013 og 2015 vegna úrskurða, dóma og kæra vegna misnotkunar fyrirtækisins á markaðsráðandi stöðu, en niðurstaða Samkeppniseftirlitsins var að fyrirtæki innan samstæðunnar hefðu gerst brotleg við ákvæði samkeppnislaga. Í því ljósi og vegna þess að frekari samþjöppun á fjarskiptamarkaði er yfirvofandi telur 1. minni hluti ekki tækt, með hliðsjón af almannahagsmunum og neytendaöryggi, að bíða með að innleiða ákvæði úr frumvarpi til heildstæðra fjarskiptalaga sem lagt var fram á síðustu tveimur löggjafarþingum, er helst snerist um vernd neytenda í þessu tilliti; snúast um samkeppnismál, samkeppnisrétt sem er aðallega um vernd neytenda. Þau rök ráðuneytisins sem bárust umhverfis- og samgöngunefnd þess efnis að umrætt ákvæði sem minni hlutinn vill bæta við skyldi heldur bíða heildarendurskoðunar enda ákvæði ekki afturvirk, telur 1. minni hluti allt eins geta átt við frumvarpið í heild og allt það mál sem við fjöllum um hér í dag. Við vorum svo sem að ræða við framsögumann málsins, hv. þm. Njál Trausta Friðbertsson, enda hafa samningar Mílu við Ardian þegar átt sér stað og ákvæði sem verða að lögum, hvort sem er þau sem eru í framtíðarheildarendurskoðun eða því frumvarpi sem nú er til afgreiðslu, ekki afturvirk. Það er eðli laga að þau eru ekki afturvirk. Heildarendurskoðun fjarskiptalaga er framtíðarverk sem óvíst er hvenær kemur til kasta þings að nýju. Það liggur fyrir að fullyrðingar um að það komi til þingsins í lok þessa mánaðar eru að verða ansi hæpnar í ljósi þess að frumvarpið er ekki komið inn í samráðsgátt stjórnvalda. Ágreiningur sá er varð við vinnslu frumvarpanna á síðustu tveimur þingum, varðandi önnur ákvæði en það sem 1. minni hluti ætlar nú að leggja til að bætt verði við og kom í veg fyrir afgreiðslu heildarlaga, getur hæglega átt sér stað aftur. Við heyrðum það í ræðu hv. framsögumanns meiri hluta að sú staða getur alveg komið aftur upp í vor að heildarendurskoðunin komist ekki í gegn. Hvers vegna segi ég það? Jú, af því að við höfum horft á það gerast tvisvar áður. Það er ekkert öruggt að það gerist ekki aftur. Því er hvort tveggja óvíst hvort frumvarp til heildarlaga kemur aftur inn til þingsins sem og hvort það nær fram að ganga.
Í hvaða stöðu erum við þá? Fyrsti minni hluti telur að skaðlegt geti verið að láta öryggi íslenskra neytenda gagnvart samþjöppun á fjarskiptamarkaði og sérstaklega lóðrétt samþættum fjarskiptafyrirtækjum sitja á hakanum nú þegar Alþingi bregst við gerbreyttum aðstæðum við þann gerning að Míla er seld úr landi.
Heppilegast hefði verið að heildstæð fjarskiptalöggjöf hefði legið fyrir áður en tilkynnt var um sölu Símans á Mílu enda sáust merki um þá atburðarás þegar fyrir um tveimur árum. Það var búið að flagga þessari sölu við stjórnvöld fyrir löngu. Nú þegar merki eru um enn frekari samþjöppun og samþættingu verður löggjafinn, við sem erum við hér, að bregðast við með aðgerðum til verndar almenningi, til verndar neytendum í landinu. Viðbrögð stjórnvalda og Alþingis við orðnum hlut ættu að taka mið af þessu og í þeim ættu ekki einungis að felast tilraunir til verndar þjóðar- og fjarskiptaöryggi heldur einnig og ekki síður neytendaöryggi. Þar má og á að grípa strax í taumana hvað sem líður tímasetningu á yfirstandandi sölu á Mílu úr landi.
Ákvæði það sem 1. minni hluti leggur til að verði bætt við var í fyrri frumvörpum til heildarlaga um fjarskipti er nýmæli og byggist á 78. gr. tilskipunar (ESB) 2018/1972 er nefnist Kóðinn. Í ákvæðinu er fjallað um tilvik þar sem fyrirtæki með umtalsverðan markaðsstyrk aðskilur aðgangsnet sín frá annarri starfsemi að eigin frumkvæði. Samkvæmt 3. mgr. ákvæðisins skal Fjarskiptastofa meta áhrif aðskilnaðar ásamt öðrum skuldbindingum sem fyrirtækið kann að bjóða samhliða aðskilnaði og meta hvort ástæða er til að endurskoða kvaðir á viðkomandi markaði með tilliti til aðskilnaðarins.
Ég ætla ekki að fara að þylja hér upp breytingartillöguna, hún er í nefndarálitinu sjálfu. En mig langar að fjalla aðeins um til hvers við erum að leggja þetta til af því að markmið samkeppnislaga er að efla samkeppni á markaði, í viðskiptum, og það er í þágu neytenda, í þágu alls almennings. Samkeppnislög eru sett til að vinna gegn skaðlegri fákeppni og samkeppnishömlum og auðvelda aðgang nýrra keppinauta að markaði. Af hverju viljum við tryggja að hugsað sé fyrir þessu þegar verið er að setja ný lög? Jú, vegna þess að fákeppni á markaði, eða gríðarstór aðili sem trónir yfir öllu, hefur þann ótvíræða ókost að vera leiðandi í verðmyndun og leiðandi er varðar þjónustu við almenning og þannig skaðar það beinlínis hagsmuni neytenda að passa ekki upp á þann þátt.
Til að aðstoða stjórnvöld við að framfylgja þessum lögum höfum við heila stofnun, Samkeppniseftirlitið, sem fer með það vald að framfylgja boðum og bönnum. Samkeppniseftirlitið ákveður líka aðgerðir gegn samkeppnishamlandi hegðun fyrirtækja og eins og kom fram í nefndarálitinu og í ræðu minni hér áðan hefur Samkeppniseftirlitið ítrekað þurft að hafa afskipti af fjarskiptafyrirtækjum, þar á meðal Símanum og Mílu.
Við í hv. umhverfis- og samgöngunefnd nutum leiðsagnar Samkeppniseftirlitsins í því máli sem við fjöllum hér um í dag, enda ber því að leiðbeina bæði stjórnvöldum og auðvitað að veita Alþingi upplýsingar um hvar hættur leynast og hvað má betur fara en einnig hvað þarf að gera til að tryggja að yfirvöld hafi þau verkfæri sem þarf til að tryggja hagsmuni almennings.
Í umsögn Samkeppniseftirlitsins er bent á að það er jú Fjarskiptastofnun sem fer með málefni fjarskiptafyrirtækja og í frumvarpi því sem hér er til umfjöllunar var Fjarskiptastofnun loksins veitt ákveðið tæki til að berjast gegn brotum á samkeppnislögum og EES-gerðum sem fyrirtækjum á fjarskiptamarkaði ber að framfylgja.
Frumvarpið bar með sér heimild til Fjarskiptastofnunar sem Samkeppniseftirlitið fagnaði. Kemur þar fram að um hafi verið að ræða tæki til að leggja stjórnvaldssekt á fjarskiptafyrirtæki sem nemur hlutfalli af veltu í það minnsta vegna brota á ákvæðum um skyldu til að veita fullnægjandi og réttar upplýsingar. Þess ber að geta að Samkeppniseftirlitið hóf að rannsaka sölu Símans á Mílu til Ardian þegar tilkynnt var um söluna og kallaði strax eftir upplýsingum og síðast þegar við fengum upplýsingar fyrir hv. umhverfis- og samgöngunefnd hafði Síminn, eða seljandinn, ekki enn veitt nauðsynlegar upplýsingar sem kallað hafði verið eftir þó að langur tími væri liðinn.
Fjarskiptastofa hefur hingað til ekki haft neina lagaheimild til að leggja á stjórnvaldssektir vegna lögbrota fjarskiptafyrirtækja í hlutfalli við efnahagslegan styrkleika þeirra eftir því sem Samkeppniseftirlitið kemst næst heldur einungis getað lagt á sektir sem nema tiltekinni hámarksfjárhæð án tillits til fjárhagsstöðu og efnahagslegs styrks fyrirtækisins. Hefur hámarksfjárhæðin verið 10 millj. kr. og við sjáum að það er ekki há fjárhæð fyrir risastóran aðila á fjarskiptamarkaði á Íslandi. Samkeppniseftirlitið nefnir það í umsögn sinni að sektarheimildir sem hlutfall af veltu fyrirtækis, er gerist brotlegt við viðkomandi lög og reglur, eru til þess fallnar að hafa almenn og sértæk varnaðaráhrif á viðkomandi markaði og auka þar með hlítingu fyrirtækja vegna viðkomandi reglna sem löggjafinn hefur ákveðið. Með sambærilegum hætti eru sektarheimildir með tiltölulega lágu hámarksþaki, eins og í tilviki Fjarskiptastofu, þ.e. 10 millj. kr., ekki til þess fallnar að hafa slík áhrif.
Hvað þýðir þetta, herra forseti? Þetta þýðir að með því að meiri hlutinn hafi ekki treyst sér til að halda því ákvæði inni heldur fella það út úr frumvarpinu, á grundvelli þess að í framtíðinni komi kannski inn nýtt frumvarp, heildarendurskoðun, og að þetta hafi ekki verið nægilega rökstutt — það þýðir einfaldlega að verið er að veikja þetta eftirlit og verið er að veikja möguleika Fjarskiptastofu til að grípa inn í þegar fyrirtæki, stórir aðilar á markaði, eru að brjóta samkeppnislög. Og hvað gerist þá? Hvernig er hægt að bregðast við því þegar meiri hlutinn talar hér um að það vanti rökstuðning með einhverju sem er verið að leggja til í frumvarpi stjórnvalda? Jú, herra forseti, það er hægt að bregðast við með því að vinna vinnuna sína í nefndunum. Það er hægt að bregðast við því með því að hafa ríkulegan stuðning og útskýringu og röksemdir í nefndaráliti, af því að nefndarálit eru lögskýringargögn. En hvað gerist? Sú brýna hætta sem við var hér fyrir jól er liðin hjá. Við þurftum ekki að afgreiða þetta frumvarp á einni viku og meiri hlutinn í umhverfis- og samgöngunefnd lyppast niður þegar kemur að vörnum fyrir almenning í landinu, þorir ekki að halda því til streitu og vill bara bíða með allt sem gæti mögulega verið eitthvað óþægilegt sem varðar samkeppnisrétt, sem varðar neytendarétt, neytendavernd og neytendaöryggi. Þau leggja ekki í að fara í neitt slíkt og láta það bíða, láta það fara í rúllettuna milli stjórnarflokkanna sem geta ekki komið sér saman um, og hafa ekki getað komið sér saman um það síðustu tvö löggjafarþing að klára verkið.
Stjórnarflokkarnir þrír eru með meiri hluta hér í þinginu. Ef það hefði ekki verið fyrir bullandi ágreining þeirra á milli hefðu frumvörpin klárast. Það liggur alveg ljóst fyrir. Maður veltir fyrir sér hvers vegna ríkisstjórnarflokkunum þremur, Vinstri grænum, Framsóknarflokki og Sjálfstæðisflokki, er svona mikið í nöp við samkeppni á Íslandi. Hvers vegna er þeim svona mikið í nöp við neytendur? Af hverju gera þau allt til þess að strípa þetta mál af mögulegri vörn fyrir almenning í landinu nema bara fyrir það eitt að tryggja þjóðaröryggi? Það er ekki léttvægt. Ég styð þann tilgang en ég skil ekki annars vegar hvers vegna ekki er hægt að bregðast við þeim ábendingum að nauðsynlegt sé að setja inn þetta ákvæði sem áður var í 57. gr., og gengur undir nafninu Kóðinn, og hins vegar að tryggja rökstuðning undir það að fara í ákveðnar aðgerðir, að veita Fjarskiptastofu tæki til þess að gera það sem hún á að gera samkvæmt lögum.
Ég tek undir það að það er mikilvægt að ákvæði séu skýr, að refsiákvæði séu skýr. Almáttugur! Við erum löggjafinn og við getum gert þau skýr, en það var enginn vilji til þess í nefndinni, engin tilraun gerð til þess, frekar en nokkur einasti vilji var til þess að leggja til breytingu á 57. gr. Því var bara tekið sem helberum sannleika að það mætti bíða af því að lög væru ekki afturvirk. Hvers vegna að bíða heildarendurskoðunar varðandi svona mikilvæg úrræði?
Ég hlakka til að sjá mögulegt frumvarp til heildarendurskoðunar á fjarskiptalögum og mun svo sannarlega gera allt sem ég get til þess að sú vinna sem þar fer fram verði vönduð. Ég vona að stjórnarflokkarnir og stjórnarliðar í hv. umhverfis- og samgöngunefnd reyni að beita sér fyrir því að frumvarpið komi snemma inn, ef það er ætlunin að það komi inn, til að við getum einmitt lagað þá mögulegu agnúa sem kunna að verða á því frumvarpi.