152. löggjafarþing — 35. fundur,  8. feb. 2022.

fjarskipti o.fl.

169. mál
[15:22]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Frú forseti. Þingleg meðferð þessa frumvarps hefur verið dálítið óvenjuleg. Mig langar að byrja á því að teikna upp tímalínu þessa máls og teygja mig kannski aðeins lengra aftur vegna þess að það er svo margt hérna sem sýnir þann sofandahátt sem þessi ríkisstjórn sérstaklega en margar fyrri líka hafa sýnt í þessum málum. Við getum bara byrjað þar sem þetta hófst allt saman, þegar Síminn var einkavæddur árið 2005. Það eru 16 ár síðan að þessir grunninnviðir fjarskiptakerfis Íslands komust í hendur einkaaðila. Það er ekki búið að setja ramma utan um öryggisþáttinn sem hér á að setja ramma utan um hluta af. Á síðasta kjörtímabili fór að myndast aukin pressa, aukinn áhugi fjárfesta á því að festa kaup á fjarskiptainnviðum hér á landi. Þetta virðist vera hluti af alþjóðlegri þróun þar sem t.d. alþjóðlegir fjárfestingarsjóðir sjá góða möguleika í því að festa fé í fjarskiptainnviðum m.a. í ýmsum löndum. Þessi Ardian-sjóður sem ætlar að kaupa Mílu er dæmi um það.

Það var strax árið 2020, í september, sem almenningur gat vitað að þetta væri yfirvofandi þegar það birtust fréttir af því að Síminn hefði fengið fyrirspurnir frá fjárfestum um að þeir hefðu áhuga á að festa kaup á Mílu. Hálfu ári seinna urðu þau þáttaskil að Sýn seldi óvirka innviði í eigu þess fyrirtækis og tók síðan aftur á leigu frá fjárfestunum sem keyptu þá með langtímasamningi, svipað og er í gangi á milli Símans og Mílu. Síðan í júlí á síðasta ári þá heyrir almenningur í gegnum fréttir að fjöldi fjárfesta sé að undirbúa kauptilboð í Mílu. Ég ætla að reikna með því að stjórnvöld séu alla vega jafn fljót að lesa fréttirnar og almenningur. Í svona málum getum við jafnvel komist að hlutum aðeins fyrr þegar við erum að tala um þjóðhagslega mikilvæga innviði sem stjórnvöld, alla vega að eigin sögn, eru að reyna að ná böndum utan um. Þetta þýðir að allan síðasta vetur, frá því að Síminn fékk fyrirspurnir í september 2020 og þar til fjöldi fjárfesta undirbjó kauptilboð í Mílu í júlí 2021 — þessar dagsetningar ramma inn allan síðasta þingvetur þar sem umhverfis- og samgöngunefnd hafði til umfjöllunar Kóðann svokallaða, frumvarp til heildarlaga um fjarskipti, sem er með helstu varnöglum sem hefðu þurft að vera til staðar þegar kaupin gengu í gegn. Þetta var ekki einu sinni í fyrsta sinn sem það mál var til umfjöllunar hjá Alþingi. Þetta var annað löggjafarþingið í röð þar sem stjórnarflokkunum tókst að þvælast nógu mikið fyrir hver öðrum til þess að málið strandaði hér á þingi.

Mér finnst skipta máli, frú forseti, að halda því til haga að það voru ekki við í minni hlutanum sem stóðu í vegi þess máls. Vissulega voru atriði sem við vildum færa til betri vegar og vorum alveg til viðtals um en það samtal fór aldrei af stað vegna þess að stjórnarflokkarnir voru bara með þetta fast sín á milli. Það er vert að hafa í huga þennan sofandahátt ríkisstjórnarinnar þegar við berum hann saman við asann sem þinginu var síðan ætlað að starfa eftir. Síðan fóru leikar að æsast í október á síðasta ári en 23. október tilkynnir Síminn um söluna. Á svipuðum tíma er verið að ganga frá ráðherrakaplinum í einni lengstu stjórnarmyndun lýðveldistímans. Svo er það á föstudegi 10. desember sem það frumvarp sem við ræðum hér í dag lítur dagsins ljós. Þá er búið að tilkynna formönnum og þingflokksformönnum allra flokka hér inni á þingi að samningaviðræður standi yfir við Símann og Ardian sem vonast sé til að náist einhver lending í. En ef ekki þá ríði mjög mikið á að klára þetta frumvarp ekki seinna en vikuna eftir. 1. umr. er hér mánudaginn 13. desember með það fyrir augum að málið klárist föstudaginn 17. desember, ekki seinna en það. Það reyndist ekki vera nauðsyn á því þar sem samningur náðist milli ríkisins, Ardian og Símans um kvaðir tengdar sölunni á Mílu, sem ég held að sé gerð grein fyrir bæði í nefndaráliti meiri hluta og minni hluta við þetta mál. Sá samningur var staðfestur ríkisstjórninni 14. desember, daginn eftir að mælt hafði verið fyrir málinu, sama dag og fyrsti fundur umhverfis- og samgöngunefndar var um þetta mál. Þá klikkaði eitt hjá stjórnarliðum, það klikkaði að anda aðeins í kviðinn og átta sig á því að það væri bara engin ástæða til að klára þetta mál með þeirri fljótaskrift sem krafist hafði verið. En einhvern veginn voru samskiptin í stjórnarliðinu ekki nógu hröð þannig að það var ákveðið á þessum fyrsta fundi umhverfis- og samgöngunefndar að senda málið út til umsagnar með fresti til 17. desember. Þarna erum við þriðjudaginn 14. desember að senda mál út til umsagnar með fresti 17. desember.

Það er rétt að rifja upp bókun sem fulltrúar Samfylkingar, Pírata og Viðreisnar í nefndinni gerðu, þar sem við bókuðum mótmæli við þessari málsmeðferð, með leyfi forseta:

„Fulltrúar Samfylkingar, Pírata, og Viðreisnar í umhverfis- og samgöngunefnd vilja bóka mótmæli við þeirri málsmeðferð sem þjóðhagslega mikilvæg mál fá í meðförum þingsins, breytingar á fjarskiptalögum annars vegar og loftferðalögum hins vegar. Ráðherrum ber að tryggja faglega þinglega meðferð mála sem lögð eru fram af þeirra hálfu og þrátt fyrir að starfsstjórn hafi verið að störfum í tvo mánuði frá kosningum í lok september að upphafi þings þá liðu tvær vikur frá upphafi þingstarfa þar til umrædd þingmál voru lögð fram. Alþingi ber að standa vörð um öryggi og hag almennings í störfum sínum og er ólíðandi að framkvæmdavaldið með störfum sínum komi í veg fyrir að Alþingi geti sinnt sínum mikilvægum störfum. Þá eru einnig bókuð mótmæli við þeim knappa tíma sem umsagnaraðilum er veittur til að senda inn athugasemdir við umrædd mál.“

Vandinn er, frú forseti, að þetta hélt síðan bara áfram. Þarna var sem sagt fyrsti fundur 14. desember. Síðan fengum við umsagnaraðila á fund nefndarinnar til að gera grein fyrir umsögnum sínum 16. desember, degi áður en frestur átti að renna út, sem er nú umhugsunarefni líka. Þá áttaði fólk sig á því að það þyrfti að bæta við fólki á lista umsagnaraðila. Það þyrfti að bæta við þeim fulltrúum atvinnulífsins sem hefðu eitthvað um fjárfestingar erlendra aðila að segja, III. kafla frumvarpsins. Það var ákveðið að bjóða Samtökum iðnaðarins, Samtökum atvinnulífsins og einhverjum fleiri skyldum samtökum að skila inn umsögn með dags fyrirvara. Þarna var samningurinn á milli ríkisins, Símans og Ardian orðinn opinber en það var enn þá látið eins og það væri ástæða til að klára þetta mál á tæpri viku og hagsmunasamtökum boðið upp á að skila inn umsögn á einum einasta degi. Það segir sjálft, frú forseti, að þetta eru ekki vinnubrögð sem við getum sætt okkur við. Síðan fór sem betur fer meiri hlutinn í umhverfis- og samgöngunefnd að anda aðeins í kviðinn og jólin liðu og milli jóla og nýárs kom nefndin saman og samþykkti, í ljósi þess að það lægi ekki á að klára málið fyrir áramót, að senda málið aftur til umsagnar með þriggja vikna fresti, sem er hinn eðlilegi tími fyrir svona mál.

Það er nefnilega ekki bara undarlegt hversu mikill asi var á þessu máli heldur hversu lengi honum var haldið gangandi. Og eins og við vorum að ræða hér í andsvörum áðan, þá er allt það sem er í þessu máli eitthvað sem von er á með tveimur frumvörpum frá stjórninni í þessum mánuði og þeim næsta, annars vegar frumvarp háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, heildarlög um fjarskipti, málið sem tvisvar sinnum hefur strandað á milli stjórnarflokkanna en við vonum að klárist núna, og hins vegar frumvarp forsætisráðherra um rýni á fjárfestingu erlendra aðila í þjóðfélagslega mikilvægum innviðum. Það er auðvitað mál sem hefði þurft að hraða á síðasta vetri þegar var ljóst að fjárfestar væru farnir að líta hýru auga þessa fjarskiptainnviði Íslands. Sá rammi var augljóslega nauðsynlegur en það frumvarp á ekki að líta dagsins ljós fyrr en í mars, þannig að til að redda millibilsástandinu sem gæti myndast er III. kafli þessa frumvarps með ákvæðum sem snúa að fjárfestingunni sérstaklega.

Það er kannski óþarfi að endurtaka allt of mikið það sem við fórum yfir í andsvörum varðandi það hvort þörfin á þessu frumvarpi væri yfir höfuð til staðar. Það er lagt fram sem svar við sölunni á Mílu en nær einhvern veginn utan um allt annað en söluna á Mílu þar sem þetta er að sjálfsögðu ekki afturvirk lagasetning. Salan á Mílu átti sér stað á síðasta ári, í rauninni áður en frumvarp ráðherra kom til þingsins. Er þar að auki glufa sem hefur í lögum í 15, 16 ár frá því að þessir innviðir voru einkavæddir. Það má því spyrja sig, og ég vitna bara í röksemdir meiri hlutans gegn því t.d. að taka inn títtnefndu 57. gr. Kóðans, um aðgreiningu lóðrétt samþætts fyrirtækis að eigin frumkvæði, meiri hlutinn telur „ekki þörf á að leggja fram slíka breytingu þar sem framlagning frumvarps til heildarlaga um fjarskipti er fyrirhuguð í þessum mánuði. Auk þess yrði slíku ákvæði ekki beitt afturvirkt um þegar gerða samninga.“ Með sömu rökum mætti náttúrlega bara fresta öllu þessu máli þar sem því verður ekki beitt afturvirkt á söluna á Mílu og snýst um lagaákvæði sem von er á frá ráðherrum innan skamms.

Það er kannski ágætt að koma aðeins inn á nokkuð sem var rætt í nefndarstarfinu sem tengist kannski sölunni á Mílu ekki nema óbeint. Það er mikilvægi þess að vera með ekki bara öflugra grunnnet fjarskipta í landinu heldur fleiri. Á fund nefndarinnar komu fulltrúar frá m.a. Orkufjarskiptum, Tengi og Ljósleiðaranum, sem hver um sig hafa byggt upp ljósleiðaraþræði hér og þar um landið, sem vantar ekki svo mikið upp á til að hringtengja þannig að það yrði annar ljósleiðarahringur um landið. Þetta er eitthvað sem stjórnvöld mættu huga að, styðja og jafnvel standa að. Þetta eru að stórum hluta félög sem eru í eigu opinberra aðila, Ljósleiðarinn og Orkufjarskipti. Sá ljósleiðarahringur sem þessi fyrirtæki gætu komið í gagnið yrði margfalt öflugri og öruggari en sá 30 ára gamli hringur sem NATO lagði og Míla heldur utan um, bara til samanburðar. Fyrir 30 árum lá aðalkostnaðurinn í ljósleiðarakerfum í þræðinum sjálfum, ljósleiðarinn var dýr. Svo er ekki núna. NATO-þráðurinn er með átta þráðum, hringurinn sem Míla heldur utan um, en þessir aðilar eru að leggja í jörð þessa dagana strengi sem eru oft með allt að 1.000 þráðum sem hafa þá margfalda burðargetu á við það sem gamli hringurinn býður upp á. Þetta skiptir máli líka upp á það að hafa tvöfalt kerfi sem liggur ekki eftir endilega sömu leiðum. Svo við tökum dæmi af Orkufjarskiptum, sem er fyrirtæki sem raforkuframleiðendur standa að, þá var tekin sú ákvörðun af Landsvirkjun og öðrum sem standa að Orkufjarskiptum að treysta ekki á Míluþráðinn varðandi fjarskipti við virkjanir heldur byggja sitt eigið kerfi sem myndi líka fara aðra leið um þau svæði sem eru í mestri hættu á töluverðum hamförum. Það er þá kannski sérstaklega syðsti hluti landsins þar sem geta orðið mikið flóð, jökulhlaup. Þar liggur Mílustrengurinn sunnan við jökla en Orkufjarskiptastrengurinn norðan við þá þannig að það eru væntanlega hverfandi líkur á því að einhvern tímann kæmi upp sú staða að sökum náttúruhamfara færu báðir strengirnir í sundur og þó að annar gæti gert það myndu fjarskipti haldast nokkuð ótrufluð. Þetta skiptir líka máli upp á landshluta sem eru hreinlega komnir að þolmörkum. Burðargeta kerfisins t.d. inn á Vestfirði býður ekki upp á uppbyggingu á mjög gagnafrekri starfsemi vegna þess einfaldlega að strengurinn sem liggur inn á Vestfirði er nánast fulllestaður.

Þetta eru þættir sem kannski koma meira til kasta nefndarinnar þegar stóra fjarskiptafrumvarpið lendir hjá henni af því að þetta snýst ekki bara um virka samkeppni sem hefur jákvæðar afleiðingar fyrir neytendur heldur líka öryggisþáttinn. Það snýst ekki bara um að geta sett ákveðnar kvaðir á rekstraraðila (Forseti hringir.) heldur að búa til samkeppnisumhverfi þar sem verði nógu margir rekstraraðilar til að tryggja starfsemi í flestum tilvikum.