fjarskipti o.fl.
Virðulegi forseti. Ég held að það megi segja um það vinnulag sem hér er á dagskrá að við séum að horfa upp á skólabókardæmi um það hvernig ekki á að vinna að lagasetningu. Ég held að aðferðafræði ríkisstjórnarinnar varpi fyrst og fremst ljósi á það hversu illa allt síðasta kjörtímabil var nýtt. Frumvarp til nýrra heildarlaga hefur verið lagt fram en orðið að engu, ekki afgreitt, vegna ríkisstjórnarinnar sjálfrar. Framsögumaður gerði skilmerkilega og vandlega grein fyrir því frumvarpi eins og það liggur fyrir þinginu, gerði það vel, en það breytir ekki þeirri skoðun minni að við erum að horfa á ákveðinn bútasaum, sem fyrst kom á dagskrá í beinum tengslum við söluna á Mílu, sölu sem ég nota bene styð, en það var búið að kroppa út einhverjar tilteknar greinar sem áttu, að manni virtist, að geta gripið utan um þá hagsmuni sem þar átti að verja en önnur voru ekki tekin með, gleymdust eða þóttu ekki nægilega brýn. Þar undir voru öll lagaákvæði sem lúta að neytendum og að manni virðist samkeppnisþættinum.
Nú, þegar það liggur fyrir að þetta frumvarp fjallar alls ekki um þá sölu, og þarf ekki að afgreiða í tengslum við þá sölu, á það samt að fara sína leið og salan mun engu að síður eiga sér stað með þeim fyrirvara að það er til meðferðar á öðrum stað en hjá Alþingi. Engu að síður fáum við þennan bútasaum hingað inn í stað frumvarps sem nær utan um þá víðfeðmu heildarhagsmuni sem eru undir. Það er sem sagt farið af stað, að manni virðist, með frumvarp í tengslum við tiltekinn samning. Í stað þess að samningur taki mið af fyrirliggjandi lagasetningu, íslenskri, erum við í þeirri stöðu að við ætlum að smíða íslenska lagasetningu í samhengi við tiltekinn samning. Það er óheilbrigð hugmyndafræði og ég vil segja að hún sé lítillækkandi fyrir löggjafann. Löggjöfin á að vera almenn, löggjöfin á að gefa tóninn fyrir samfélagið en ekki þannig að Alþingi hendist til þegar mál koma upp.
Frú forseti. Við horfum hér á frumvarp sem tekur á breytingum á lögum um Fjarskiptastofu, á lögum um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri — allt stór og mikil mál. Frumvarpið er lítið, samtals sex greinar, en varðar grundvallarhagsmuni. Það varðar mikilvæga innviði. Það varðar almannahagsmuni í gegnum fjarskipti, það varðar þjóðaröryggi. Það fjallar um erlenda fjárfestingu í atvinnurekstri og veitir ráðherra, að mér virðist, töluvert vald til að hafa áhrif þar á. Markmiðið er gott og mikilvægt, það er nauðsynlegt að styrkja þjóðaröryggi og vernd almannahagsmuna á sviði fjarskipta. Við vitum að fjarskiptanet og fjarskiptaþjónusta eru undirstöður mikilvægrar samfélagslegrar og efnahagslegrar starfsemi og styrkleiki fjarskiptaneta skiptir gríðarlegu máli, ekki síst á landi eins og Íslandi, við okkar landfræðilegu aðstæður. Norðurlöndin hafa þessa heildarlöggjöf sem okkur vantar sem byggist á því að smíðuð eru lög, umgjörð um þessa heildarhagsmuni, og það er mér mikil ráðgáta að það hafi ekki verið talið brýnna af hálfu ríkisstjórnarinnar á síðasta kjörtímabili, allt síðasta kjörtímabil, að fara „grundigt“ í þá vinnu að verja þá hagsmuni sem hér eru undir í þágu samfélagsins alls. Við vitum t.d. að Atlantshafsbandalagið, NATO, hefur ályktað að alvarleg öryggisáhætta felist í því að samfélagið, nánast öll starfsemi í nútímasamfélagi, sé háð fjarskiptanetum. Þess vegna verða aðildarríki að tryggja að mikilvægir innviðir, eins og fjarskiptainnviðir, þoli áföll, þoli öryggisógn, geti veitt viðspyrnu gegn náttúruvá þó að ekki væri fyrir annað. Í því samhengi ætti þetta að vera sérstaklega brýnt verkefni fyrir stjórnvöld. Engu að síður sjáum við þessi vinnubrögð; þau eru bæði sein í árum talið og hér fáum við síðan sérsniðna löggjöf sem tekur á sumum þáttum en víkur öðru til hliðar. Það er þannig með lagasetningu að þú ert með vegg á kubbum og ef þú ferð að plokka einn og einn kubb út hefur það áhrif á hina. Þess vegna er þetta svo afleitt verklag. Röksemdafærslan er sú að hitt, sem er heildarlöggjöfin, komi alveg örugglega seinna.
Undir eru, eins og ég segi, almannahagsmunir af fjarskiptum og fjarskiptaöryggi, þjóðaröryggi. Allt eru það punktar sem hefðu átt að leiða til þess að þetta frumvarp hefði átt að fá vandaða kynningu, af hálfu ráðherra, hér í þessum sal, vandaða umfjöllun í þinginu, en svo hefur ekki verið. Ég vil sérstaklega árétta að mér hefur fundist hv. þingmenn Vilhjálmur Árnason, formaður umhverfis- og samgöngunefndar, og hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson halda vel á spilunum, en þeir voru bara með óskaplega fá spil á hendi. Þeir gerðu sitt, þeir unnu sína vinnu vel. Ráðgátan lýtur að því, í mínum huga, hvers vegna þetta er ekki brýnna mál af hálfu ríkisstjórnarinnar.
Í frumvarpinu sjálfu er rakið að fyrirhugað sé að endurflytja frumvarp til nýrra fjarskiptalaga sem sé þá lítillega breytt frá fyrri framlagningu og sem sé m.a. í samræmi við efnisákvæði þessa frumvarps, þau efnisákvæði sem hér er að finna. Það er sem sagt væntanlegt. Ég veit ekki hvort það er vegna þess að stjórnin telur sig ekki geta náð samstöðu í eigin hópi, innan eigin raða, við það að þessi leið sé farin, það vantar einhvern veginn alltaf í samtalið hvers vegna svona var farið af stað og svona var unnið. Það er rakið í greinargerð af hvaða ástæðum þetta frumvarp er lagt fram í þessum búningi núna, hvers vegna það er talið nauðsynlegt. Þar er rakið að það sé vegna endurmats stjórnvalda á áætlunum og viðbúnaði í kjölfar orðinna og mögulegra breytinga á eignarhaldi fjarskiptainnviða, svo sem fjárfestingu erlendra aðila í grunnvirkjum og fjarskiptaþjónustu hér á landi. Framsögumaður talaði um að afgreiða ætti þetta frumvarp vegna þess að kannski gæti eitthvað gerst á næstu vikum og vegna þess að fjarskiptanet og fjarskiptaþjónusta væru undirstaða margvíslegrar mikilvægrar starfsemi, bæði efnahagslega og samfélagslega, og það er alveg rétt. En það er frumskylda ríkisvaldsins að gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja öryggi og áreiðanleika fjarskipta í landinu, og þar undir eru líka neytendasjónarmiðin og samkeppnissjónarmiðin, með tilliti til þjóðaröryggis og almannahagsmuna, en það eru viðeigandi ráðstafanir byggðar á heildarhagsmunamati en ekki bara einhverjar þær sem eru valdar, að manni virðist — ég ætla ekki að segja af handahófi en það vantar töluvert upp á rökstuðninginn fyrir því hvers vegna sumir punktar eru hér en aðrir, sem eru afar mikilvægir og brýnir, ekki.
Þjóðaröryggi er undir en mér finnst málsmeðferðin nánast vera eins og hér sé verið að setja reglur í húsfélagi. Það er ein af frumskyldum stjórnvalda hvers ríkis að tryggja öryggi, að tryggja varnir, að við séum varin fyrir öllum þeim ógnum, hvort sem er af hendi náttúrunnar eða annarra, sem valda fólkinu í landinu, stjórnkerfinu, grunnvirkjum samfélagsins, skaða. Þetta er grundvallarhlutverk ríkisins og í þessum efnum þarf að stíga ákveðin og markviss skref sem byggja á skýrri hugmyndafræði, og hana finnst mér vanta hér. Ég velti því fyrir mér, af því að ég tók sæti í umhverfis- og samgöngunefnd fyrst í haust, hvort það gæti verið, þegar þetta mál kom inn, að það væri vegna þess að það væri ákall af hálfu hagsmunaaðila, sem ég hefði misst af í fjölmiðlum, um að keyra þetta mál í gegn. Nei, það er ekki. Það er ekki bara þannig að hér sé um skólabókardæmi um það að svona eigi ekki að setja lög. Umsagnir eru gegnumgangandi fremur neikvæðar. Ég nefni sem dæmi umsögn frá Ljósleiðaranum þar sem segir að athygli frumvarpsins sé beint að tiltölulega þröngu sviði í starfsemi og rekstri fjarskiptafélaga, að um þarfar viðbætur sé að ræða en bent er á að þessi atriði taki aðeins að litlu leyti til þeirra atriða sem skipta jafnvel enn meira máli þegar fjallað er um öryggi og áfallaþol fjarskiptaneta. Það virðist því vera niðurstaðan í þeirri umsögn að hér sé vissulega um að ræða góðar viðbætur og góða punkta, ég ætla ekki að halda öðru fram, en að það séu þó ekki þau atriði sem skipti sköpum þegar komi að stóru myndinni um áfallaþol. Þetta er a.m.k. mat þeirra sem skila þessari umsögn — tekur sem sagt ekki á þeim grundvallarþáttum sem skipta jafnvel meira máli.
Míla skilaði líka inn umsögn og þar kemur fram að vegna þess samnings sem hafi verið gerður, sem tryggi að fullu öll meginmarkmið frumvarpsins þar til ráðrúm hefur gefist til að setja vandaða og almenna löggjöf, sé í reynd engin sérstök ástæða til þess að fara fram með þennan afmarkaða þátt núna.
Ég hjó eftir umsögn frá ríkislögreglustjóra sem er vitaskuld mjög með hugann við öryggisþáttinn. Þar er talað um að í frumvarpið vanti ýmis þau ákvæði sem þar skipti máli, t.d. um heimild stjórnvalda til að gera kröfur um lágmarksgæði búnaðar til að verja áfallaþolið. Þar er fjallað um gögn sem eru vistuð í skýjum í erlendri lögsögu o.s.frv. Ég ætla ekki að rekja það í löngu máli en ég held að það hljóti að skipta máli í röksemdafærslu, þar sem lögð er svona mikil áhersla á það af hálfu meiri hlutans að hér sé um að ræða öryggisvinkilinn, hver afstaða ríkislögreglustjóra er. Ríkislögreglustjóri er, að mér sýnist, hlynntur þessu frumvarpi en er að benda á að ef þetta er ætlunin þá næst það markmið ekki fram.
Þegar maður les umsögn samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins, sem þá hét, virðist það sjálft slá út nauðsyn þess að vinna málið svona og afgreiða það í þessum búningi. Þar segir, með leyfi forseta:
„Frumvarpið sem er tilefni þessa minnisblaðs var liður í endurmati stjórnvalda á áætlunum og viðbúnaði í kjölfar orðinna og mögulegra breytinga á eignarhaldi fjarskiptainnviða …“
Síðan segir:
Frumvarpi sem er tilefni þessa minnisblaðs, var liður í endurmati stjórnvalda á áætlunum og viðbúnað í kjölfar orðin á mögulegri breytingu á eignarhaldi fjarskiptainnviða.
Síðan segir, með leyfi forseta:
„Í ljósi þess að samningar tókust milli ríkisins og Mílu skömmu eftir framlagningu frumvarpsins reyndist ekki brýn nauðsyn á að afgreiða málið með hraði.“
Samkeppniseftirlitið var jákvætt og það finnst mér skipta máli en sektirnar sem það var ánægt með hafa nú farið út í þessari mynd.
Það leynir sér ekki hver afstaða Samtaka atvinnulífsins, Samtaka iðnaðarins og Viðskiptaráðs Íslands er, sem gera alvarlegar athugasemdir við frumvarpið og samráðsleysið við gerð þess. Þessir aðilar ganga raunar svo langt að þeir leggja til að fallið verði frá frumvarpinu, að það verði hluti af þessari heildarendurskoðun sem ég er að tala um.
Síminn er sömu skoðunar, þegar umsögnin er lesin, að það eigi að hætta við málið í þessum búningi. Sömu sjónarmið sjáum við í umsögninni sem kemur frá Sýn.
Virðulegi forseti. Þegar Viðreisn vakti máls á þessu mikilvæga og spennandi máli, að því er ég vil meina, var útgangspunkturinn sá að þjóðaröryggi yrði að vera tryggt með sölu eins og þeirri sem hér er til umfjöllunar. Svo að það sé á hreinu er ég ekki mótfallin sölunni, ég styð alþjóðleg viðskipti, en það breytir því ekki að teikn eru á lofti og mikil gerjun í gangi, t.d. hvað varðar netöryggi. Þeir innviðir sem hér eru undir eru í vaxandi mæli hluti af öryggi okkar og varnarmálum, mætti segja, þannig að gríðarlegir hagsmunir eru í húfi. Við vitum að um er að ræða stærstu erlendu fjárfestingu í um áratug, að ég held, sem felur í sér gríðarlegt innflæði gjaldeyris til landsins og það þarf að vera vakandi.
Í þessu máli eru ýmsar grundvallarspurningar undir eins og ég hef stöðugt klifað á, t.d. þjóðaröryggi, efnahagshliðin, mörkin milli ríkis- og einkarekstrar. Aðalatriðið í mínum huga er þetta: Að lagaumgjörðin í kringum þessa innviði og þennan markað sé traust og heildstæð og mótuð í kringum einhverja hugmyndafræði, að markaðurinn sé skilvirkur, að hann sé sanngjarn og eftirlitið sé traust. Ég held að það megi skoða þetta í samanburði við önnur innviðakerfi sem eru í eigu opinberra aðila, t.d. flutningskerfi raforku, og þar sjáum við að eignarhaldið eitt og sér, hvort það er opinbert eða ekki, innlent eða ekki, er ekki ávísun í mínum huga á að hagsmunir almennings séu tryggðir og það er m.a. af þeirri ástæðu sem ég er ekki smeyk við þessi viðskipti. Það sem ég hef áhyggjur af og staldra við er það sem ég upplifi sem andvaraleysi ríkisstjórnarinnar um þennan þjóðaröryggisþátt málsins.
Allar greiningar, öll umfjöllun í dag, segja okkur sömu söguna hvað það varðar að hér þarf að vera vakandi. Við lifum í breyttum heimi vegna tækninnar. Við þurfum vissu um það að samskipti okkar innan lands og við umheiminn standi ekki og falli með einu fyrirtæki eða starfsemi þess. Ég vil líka nefna samkeppnishæfni Íslands í þessu samhengi. Við þekkjum síaukna þörf fyrir gagnaflutning og auknar kröfur um áreiðanleika hans. Þetta er breyta sem hefur áhrif á Ísland í heimi viðskiptanna. Þetta mál er spennandi vegna þess að það er svo margt undir núna en ekki síður til lengri tíma litið.
Ég vil í lokin nefna, eins og kemur raunar fram í greinargerð við málið, að árið 2016 var samþykkt hér þjóðaröryggisstefna, mikilvægt skref. Ég get ekki séð að mikið hafi gerst í þeim málaflokki af hálfu ríkisstjórnarinnar síðan. Við vitum að frá árinu 2016, af því að breytingarnar eru svo hraðar og þær eru svo miklar, hefur mikil þróun verið í fjarskiptum, í uppbyggingu ljósleiðara, í aðgangi að upplýsingum, blokkun á upplýsingum, sem er breyta sem ég ætla ekki að þykjast vera sérfræðingur í, það eru svo margir punktar þarna sem eru á fleygiferð. Við vitum að verðmæti upplýsinga er í heimi dagsins í dag meira en áður var og það er sjálfstæð breyta. Ég nefni sem dæmi fréttir af netöryggismálum. Við vitum að Íslendingar og Norðurlöndin, og hér get ég speglað reynslu úr fyrra starfi mínu, þar sem talað var um afbrot á netinu, tala mikið um að við séum heimsmeistarar í notkun netsins, í aðgengismálum á netinu. En það segir bara hálfa söguna því að hin hliðin er auðvitað hvort við erum sterk í netvörnum og netöryggi. Gögnin segja okkur að svo er ekki. Við erum sem sagt fremst meðal þjóða þegar kemur að aðgengi fólks, ég held að Norðurlöndin séu í 5. og 6. sæti á topplista, en það er barnaskapur að halda að það sé nóg að dúxa hvað varðar aðgengið, það eru varnirnar sem mestu máli skipta í stóra samhenginu um öryggismál.
Frú forseti. Þetta er risavaxið mál og einmitt þess vegna á að vinna það með öðrum hætti en þessum. Ég hef ekki enn heyrt sannfærandi svör um það hvers vegna við erum ekki að ræða heildarfrumvarpið hér í þessum sal núna, hvers vegna ekki var hægt að leggja upp í þá vegferð og vera líka með neytendavinkilinn undir, samkeppnismál og alla þá þætti sem út af standa. Ég samþykki ekki að þetta sé besta leiðin til þess að verja hagsmuni þjóðar. Við vitum að þetta er mál þar sem ríkisstjórnin var í málþófi við sjálfa sig, stoppaði sjálf þetta mál á sínum tíma, eða þannig birtist þetta manni að minnsta kosti. Ég hef áhyggjur af verklaginu. Ég er hlynnt sölunni. Ég skil ekki þetta frumvarp og ætla að enda á sömu orðum og ég byrjaði: Ég er eindregið þeirrar skoðunar að hér séum við með skólabókardæmi um það hvernig ekki á að setja lög.