fjarskipti o.fl.
Frú forseti. Ég ætla ekki að endurtaka það sem kom fram í umræðunni áðan og andsvörum en mig langaði að taka fyrir ákveðna efnisþætti sem hv. þingmaður kom inn á í sinni ræðu, eins og með neyðarfjarskiptin, ríkislögreglustjóra og Neyðarlínuna. Það kemur fram í áliti meiri hlutans að það er mikilvægt að koma því inn í stóra pakkann, inn í Kóðann, fjarskiptalögin. Þar er mjög mikilvægt, ég vildi bara rétt minnast á það, að þau mál séu kláruð með góðum hætti í stóra frumvarpinu. Hv. þingmaður kom aðeins inn á þjóðaröryggisumræðuna almennt. Nú hef ég setið hér á þingi síðan 2016. Þetta er örugglega það sem ég tala almennt mest um, þjóðaröryggismál, sem eru í svo mörgum málum. Það eru fjarskiptamálin, samgöngurnar, flutningskerfi raforku og þessir grunnþættir sem eru í íslensku samfélagi og samfélagið á allt undir. Við höfum nú verið að kynnast því, bara á síðustu tveimur sólarhringum, hvað það skiptir miklu að vel sé að hlutum staðið. Við erum jafnvel 40, 50 árum á eftir nágrannaþjóðum í löggjöf sem snýr að þjóðaröryggismálum. Svíarnir eru með sitt Riksintresse, Norðmenn eru búnir að vera með sína stefnu, þeir tóku nýja stefnu bara 2019 og endurbættu. Það eru væntanlega, hefur mér verið tjáð, kannski þrjú lönd í Evrópu sem eru ekki með alvöru þjóðaröryggislöggjöf. Það er bara þannig. Og fyrir okkur sem búum við þá veðráttu sem hér er og staðsetningu og annað sem hér er undir þá er gríðarlega mikilvægt að við vöndum okkur í þessu. Ég vil taka undir þetta og fá kannski aðeins dýpri umfjöllun hjá hv. þingmanni varðandi þjóðaröryggisvinkilinn almennt yfir línuna og tökum það síðan í seinna andsvari.