fjarskipti o.fl.
Frú forseti. Árangurinn. Hann er kannski sá sem maður að sjá núna í þinginu á allra síðustu misserum, við erum farin að sjá í löggjöf það áréttað sem snertir þjóðaröryggismál, varðandi náttúruvá, við flutningskerfi raforku. Það eru komnir ákveðnir punktar. Við vorum í nefndinni í morgun með mál um loftferðir, þar erum við með stóran lagabálk um þau mál og þar er farið að eiga aðeins við þjóðaröryggisvinkil á ákveðnum sviðum og við sjáum hann í þessu máli og væntanlega síðan í stóra málinu, í Kóðanum. Þessar áherslur er að koma meira og meira inn. Mér þótti það furðulegt 2016 þegar ég byrjaði hérna hvað það var í raun búið að fjalla lítið um þjóðaröryggismál á svo mörgum sviðum. Nú hef ég verið í rúm fjögur ár á NATO-þinginu og séð áherslurnar í umræðunni þar, t.d. á netöryggismál sem hefur verið þar eitt allra stærsta málið síðan ég byrjaði. Síðan er bara þessi umræða almennt um varnar- og öryggismál og annað, þau eru ekki mikið rædd hér. Það er ekki rætt mikið um þessi mál í íslenskri pólitík, hvað þá í fjölmiðlum. Það þarf helst að horfa á erlendar stöðvar til að sjá einhverja umræðu sem jafnvel skiptir okkur máli. Það er svolítið þannig. Ég tek undir þetta varðandi þjóðaröryggisstefnuna frá 2016, hún átti að skoðast innan fimm ára, minnir mig örugglega, það er sem sagt kominn tími á það þannig að ég vona að almennt förum við að taka svolítið stærri skref í þessum málum sem snúa öllu þessu sem við erum að ræða, hvort sem það eru fjarskiptin, samgöngurnar, orkuöryggi og allir þessir hlutir sem nútímasamfélag treystir á. Og netöryggismálin, ef við tökum ekki að fullu þátt í þessu með öðrum NATO-þjóðum þá verðum við bara ekkert með í leiknum.