152. löggjafarþing — 35. fundur,  8. feb. 2022.

fjarskipti o.fl.

169. mál
[16:19]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V) (andsvar):

Forseti. Já, ég er sammála því og var einmitt með hugann við það í morgun þegar við vorum að skoða það frumvarp í umhverfis- og samgöngunefnd sem hv. þingmaður lýsir, við sjáum þessa þræði og við sjáum þessa anga fléttast gegnum einstök mál. Það er jákvætt og það er gott. En ég sakna þess hins vegar af hálfu ríkisstjórnarinnar, því að ég er líka áhugamanneskja um þjóðaröryggismál, að ekki sé verið að mynda heildstæða stefnu og vinna út frá einhverri markvissri hugmyndafræði. Ef það væri reyndin þá held ég að við værum búin að staldra við það hver staðan er í netöryggi þjóðarinnar. Ég sé þá stöðu sem þar er uppi einfaldlega sem mikinn hættupunkt fyrir Ísland, hættuástand jafnvel, og árið 2022 held ég að við eigum ekki að vera tala eins og netið sé nýr veruleiki, mér finnst maður stundum sjá það í opinberri umræðu. Við þyrftum að mínu viti ekki seinna en í gær að markera okkur skýrari stefnu og aðgerðir í þessum málaflokki, einfaldlega vegna þess sem hv. þingmaður segir svo réttilega, annars verðum við ekki með. Ekki bara það að við verðum eftir á heldur stöndum við uppi með óvarið samfélag. Það þýðir ekki að tala með þeim hætti að við séum framsækin vegna þess að íbúar þessa lands búi við gott aðgengi og séu duglegir á netinu og verji jafnvel allt of miklum tíma á netinu, það er kannski meiri umræða um það hvað við höngum mikið á netinu heldur en hverjar hætturnar eru á netinu, ekki bara hætturnar hjá einstaklingum og borgurum þessa lands heldur hætturnar fyrir þjóðfélagið í heild sinni. (Forseti hringir.) Hvert er nýjasta árásarformið? Það er verið að ráðast á innviði í gegnum netið.