búvörulög.
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingar á búvörulögum, niðurgreiðslu á raforku til grænmetisbænda. Það er gjörvallur þingflokkur Flokks fólksins sem er á málinu. Ég efast ekki um að allir þekkja okkur en það eru sem sagt Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Eyjólfur Ármannsson, Guðmundur Ingi Kristinsson, Jakob Frímann Magnússon, Tómas A. Tómasson og að sjálfsögðu ég sjálf.
1. gr. frumvarpsins hljóðar svo:
„Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
Þrátt fyrir ákvæði 1. og 2. mgr. 58. gr. skal ríkissjóður niðurgreiða garðyrkjubændum allan kostnað við flutning og dreifingu raforku vegna framleiðslu garðyrkjuafurða á árunum 2022, 2023, 2024 og 2025, að þeim skilyrðum uppfylltum að orkukaupin séu vegna atvinnustarfsemi, að niðurgreidd raforka sé sérmæld og fari einungis til loftræstingar eða lýsingar plantna til að örva vöxt þeirra, að framleiðslan sé ætluð til sölu og að ársnotkun sé meiri en 100 MWst á ári. Heildarfjárhæð niðurgreiðslna skv. 1. málsl. skal ekki takmarkast við heildarframlög í samningum sem íslenska ríkið gerir við framleiðendur garðyrkjuafurða. Jafnframt skal ríkissjóður niðurgreiða garðyrkjubændum helming kostnaðar vegna uppbyggingar á dreifikerfi raforku til garðyrkjubýla, gróðrarstöðva og garðyrkjustöðva á árunum 2022, 2023, 2024 og 2025. Heimilt er ráðherra að fela Matvælastofnun eða öðrum opinberum aðila að annast faglega umsjón með niðurgreiðslu á kostnaði við flutning og dreifingu raforku, enda sé skipulag þeirra og starfsreglur í samræmi við ákvæði laga. Ráðherra setur reglugerð um framkvæmd þessa ákvæðis.“
2. gr. frumvarpsins hljóðar einfaldlega svo:
„Lög þessi öðlast þegar gildi.“
Frumvarp þetta var áður lagt fram á 151. löggjafarþingi, 338. mál, og er nú endurflutt. Frumvarpið er að mestu leyti óbreytt en sú breyting er gerð að stuðningur samkvæmt 1. gr. frumvarpsins tekur nú einnig til loftræstingar í gróðurhúsum, enda bentu Bændasamtökin á það í umsögn um frumvarpið á 151. löggjafarþingi að stór hluti orkunotkunar gróðurhúsa væri vegna loftræstingar.
Heimsfaraldur Covid-19 og þær nauðsynlegu sóttvarnaaðgerðir sem þjóðir heimsins hafa þurft að grípa til hafa sýnt fram á það hve mikilvæg innlend matvælaframleiðsla er fyrir öryggi þjóða. Innlend matvælaframleiðsla er sérstaklega mikilvæg þegar þjóð er jafn einangruð og viðkvæm fyrir röskun á innflutningi á matvælum og við hér á Íslandi. Þess vegna er fullt tilefni til að ráðast í stórsókn í framleiðslu garðyrkjuafurða og fella niður þá múra sem standa í vegi fyrir því að efla megi innlenda framleiðslu. Aukin innlend matvælaframleiðsla mun einnig hafa jákvæð áhrif í baráttunni gegn efnahagsáhrifum Covid-19 næstu árin. Þar sem frumvarpið leggur til auknar endurgreiðslur vegna kostnaðar sem fellur til frá ársbyrjun 2021 mun það hafa atvinnuskapandi áhrif þegar við gildistöku. Því er brýnt að frumvarpið verði samþykkt sem fyrst.
Framleiðsla garðyrkjuafurða hefur á síðustu áratugum eflst til muna á Íslandi, og er það vel. Þótt landið sé harðbýlt hafa garðyrkjubændur unnið mikið þrekvirki við að koma upp aðstöðu til að rækta hér matvæli sem áður þótti óhugsandi að rækta á norðurslóðum. Íslenskur almenningur hefur vegna framþróunar í garðyrkju haft greiðan aðgang að vörum sem áður þóttu munaðarvörur. Aðgengi að ódýrri orku hefur átt stóran þátt í uppbyggingu garðyrkju á Íslandi. Raforka er nauðsynleg í ylrækt til að lýsa og hita gróðurhús. Raforkuverð hefur því bein áhrif á það hversu mikið garðyrkjubændur geta framleitt og á hvaða verði þeir selja afurðir sínar til neytenda.
Raforka er nú markaðsvara og því þarf að greiða fyrir hana markaðsverð, sem sveiflast eftir framboði og eftirspurn. Til að stuðla að aukinni framleiðslu garðyrkjuafurða hefur íslenska ríkið í gegnum tíðina niðurgreitt að ákveðnu marki kostnað garðyrkjubænda við flutning og dreifingu á raforku. Þessar niðurgreiðslur gera garðyrkjubændum kleift að selja vörur á samkeppnishæfu verði þrátt fyrir mikið framboð af innfluttu erlendu grænmeti.
Þó eru ákveðnir vankantar á núverandi fyrirkomulagi. Niðurgreiðslur takmarkast við fyrirframákveðin heildarframlög á ári hverju og hver einstakur framleiðandi getur aðeins fengið tiltekinn hluta af niðurgreiðslum. Þá er í búvörusamningi um starfsskilyrði framleiðenda garðyrkjuafurða kveðið á um að framleiðendur skuli ávallt greiða að lágmarki 5% kostnaðar við flutning og dreifingu. Nú þegar hafa stjórnvöld endurskoðað samninga við garðyrkjubændur og boðað auknar niðurgreiðslur á næstu árum. Það er jákvætt fyrsta skref. Það er þó nauðsynlegt að ganga lengra.
Í frumvarpi þessu er lagt til að á næstu fjórum árum verði niðurgreiddur allur kostnaður við flutning og dreifingu raforku til framleiðslu á garðyrkjuafurðum. Ríkið verði því skuldbundið til að niðurgreiða kostnað óháð því hvort heildarkostnaður fari fram úr þeim viðmiðum sem kveðið er á um í samningum milli ríkisins og garðyrkjubænda og þeim viðmiðum sem kveða á um hámark hlutdeildar einstakra framleiðenda af heildarniðurgreiðslum.
Þegar ætlunin er að hefja framleiðslu garðyrkjuafurða eða auka við framleiðsluna þarf að byggja upp dreifikerfi eða stækka dreifikerfi til að auka flutningsgetu þess. Garðyrkjubændur geta alla jafna ekki valið milli dreifiaðila og þurfa að greiða háar fjárhæðir fyrir uppbyggingu dreifikerfa. Sá kostnaður er ekki niðurgreiddur og þessi rekstrarskilyrði mynda því ákveðna hindrun fyrir garðyrkjubændur sem gerir þeim erfitt fyrir ef þeir hyggjast auka við framleiðslu sína og dregur úr nýliðun í greininni. Stofnkostnaður er mikill og fastur rekstrarkostnaður einnig umtalsverður. Þess vegna er lagt til að ríkið niðurgreiði helming kostnaðar garðyrkjubænda við uppbyggingu á dreifikerfi raforku til garðyrkjubýla, gróðrarstöðva og garðyrkjustöðva.
Verði þetta frumvarp að lögum skapast kjöraðstæður fyrir garðyrkjubændur á Íslandi til að efla starfsemi sína og auka framleiðslu. Því er viðbúið að innlend framleiðsla á garðyrkjuafurðum aukist til muna og að fjöldi starfa skapist í greininni. Að auki hefur aukin framleiðsla garðyrkjuafurða jákvæð áhrif í öðrum greinum atvinnulífsins, svo sem byggingariðnaði. Þá er mikið framleitt af garðyrkjuafurðum á þeim svæðum landsins sem hvað mest finna fyrir samdrætti í ferðaþjónustu og því myndi stórsókn í þeirri framleiðslu sporna við auknu atvinnuleysi á þeim svæðum.
Ég ætla ekki að tala frekar um einstakar greinar frumvarpsins en vil geta þess að alveg frá því að Flokkur fólksins var stofnaður árið 2016 hefur það verið draumur okkar að við verðum sjálfbær í ræktun á grænmeti og ávöxtum, og ekki bara fyrir okkur hér innan lands heldur að til lengri tíma litið getum við farið að framleiða það mikið af hreinni, frábærri og ómengaðri afurð að við gætum farið að selja hana á erlenda grund, að við á sama tíma hættum að flytja inn ávexti og grænmeti frá öðrum löndum. Það myndi gjörbreyta öllu.
Til gamans ætla ég að geta þess að þegar ég var að byrja í stjórnmálum kom skrýtið mál upp í Danmörku, einkennilegt mál. Það kom í ljós að skordýraeitur hafði greinst í þvagsýnum leikskólabarna. Það varð auðvitað ákveðinn æsingur í því öllu saman og þingmenn þar ákváðu, af því að þeir voru duglegir að borða ávexti og grænmeti, að láta athuga hvort ekki væri um einstakt og afmarkað tilvik að ræða hjá þessum leikskólabörnum. En viti menn. Það var líka fullt af skordýraeitri í þvagi þeirra, svo einkennilegt sem það var. Þá fóru þýskir þingmenn að skoða málið og kom í ljós að það sama var uppi á teningnum þar. Hver skyldi ástæðan hafi verið? Auðvitað var farið að athuga hverju þetta sætti. Hvernig stóð á því að skordýraeitur fannst í þvagi þingmanna og leikskólabarna, eitur sem hafði verið bannað að nota í Evrópu um áraraðir? Það var rakið til agúrkna frá landi sem við höfum skipt mjög mikið við. Ég hef ekki enn farið þangað og við kannski fæst látið skoða hvernig okkar mælingar kæmu út, hvort við séum kannski líka með svolítið mikið af skordýraeitri í þvaginu. Við erum dugleg að borða grænmeti og ávexti og þess vegna er dapurt að við skulum ekki vera sjálfbær um framleiðsluna.
Þetta frumvarp hefur verið draumur Flokks fólksins. Við höfum áður mælt fyrir því, eins og ég hef sagt. Þetta er glæsilegt markmið sem ástæða er til að þingheimur taki utan um og stefni að með okkur og láti verða að lögum. Það er falleg framtíðarsýn ef við notum okkar hreinu, grænu, fallegu orku og okkar ómengaða vatn til að framleiða ómengaða, yndislega afurð og að við verðum sjálfbær í þeirri framleiðslu. Það yrði ómetanlegt. Ég er bjartsýn og brosandi hvað þetta varðar því að ég trúi því að með góðum vilja getum við aðstoðað garðyrkjubændur og jafnvel aðra bændur, sem eiga kannski erfitt í sínum búrekstri, við að rækta grænmeti; gefa þeim í raun tækifæri til þess, í stað þess að bregða búi út af erfiðleikum, að breyta um búgrein. Ég get ekki einu sinni ímyndað mér hvað við gætum framleitt mikið af frábæru grænmeti og ávöxtum. Eins og kom fram, þegar ég var að lesa upp úr frumvarpinu áðan, var áður talið ómögulegt að rækta ýmislegt af því sem við ræktum í dag, á okkar harðbýla landi norður á hjara veraldar. Það var eiginlega talið galið þegar við vorum að tala um að framleiða ýmsar tegundir af ávöxtum og grænmeti sem við höfðum fram að þeim tíma einungis flutt inn og margt ekki einu sinni séð.
Virðulegur forseti. Ég legg frumvarpið glöð fram. Ég vona svo sannarlega að því verði vel tekið. Ég bið hæstv. forseta að vísa því í rétta nefnd, ég er gjörn á að ruglast á því til hvaða nefndar frumvörpin mín eiga að fara. En ég treysti hæstv. forseta til að sjá til þess að frumvarpið okkar rati á réttan stað.