búvörulög.
Virðulegi forseti. Við erum hér að fjalla um frumvarp Flokks fólksins um niðurgreiðslu á raforku til garðyrkjubænda. Á margan hátt er þetta eiginlega snilldarfrumvarp. Ef við hugsum virkilega um allt það grænmeti sem við flytjum inn, með tilheyrandi kolefnisspori, í flugi eða í skipum, í kæligámum, er eiginlega með ólíkindum að við skulum ekki hafa brett upp ermarnar og gefið garðyrkjubændum þann möguleika að geta stóraukið framleiðslu sína. Við höfum hér það sem margar aðrar þjóðir hafa ekki, við höfum hreint vatn, við höfum hreina orku, nóg af henni, eða höfðum nóg af henni, nú þurfum við sennilega að bretta upp ermar líka og gera hagkvæmar virkjanir. En á sama tíma erum við að flytja inn í miklu magni grænmeti; papriku, gúrkur, tómata, t.d. frá Hollandi þar sem þeir treysta sennilega aðallega á kjarnorku eða orku sem er ekki nærri jafn umhverfisvæn og okkar.
Ef við hugsum t.d. um Holland, hversu ótrúlega mikið af bæði blómum og grænmeti þeim hefur tekist að framleiða og flytja út miðað við þá aðstöðu sem þeir hafa og setjum það í samhengi við þá aðstöðu sem við höfum, það sem við gætum gert, þá er eiginlega alveg óskiljanlegt að við skulum ekki vera búin að bretta upp ermarnar og stórauka framleiðsluna og séum ekki hreinlega löngu orðin sjálfbær og byrjuð með stórfelldan útflutning. Við erum byrjuð með stórfelldan útflutning eins og við höfum eiginlega getað á gúrkum t.d., við flytjum gúrkur til Grænlands, Færeyja og Danmerkur. Og hvers vegna skyldi þetta vera svona vinsælt þar? Jú, íslenska gúrkan er frábær. Hún er bara hrein, engin eiturefni eru notuð við framleiðsluna og hún er miklu bragðbetri. Það fer ekkert á milli mála. Það er alveg sama hvað er, ef við tökum íslenska papriku og erlenda papriku, ég get fullyrt að sú íslenska er margfalt bragðbetri og ég efast ekki um að hún sé hollari, bæði vegna þess að ekki eru notuð eiturefni til að framleiða hana og vegna hreina vatnsins.
Ef við hugsum málið til enda, hverjir hefðu mestan hag af því ef við myndum t.d. niðurgreiða rafmagn til garðyrkjubænda og stórauka og gera fleiri bændum kleift að fara út í gróðurhúsarækt og framleiða grænmeti? Ef við hugsum þetta aðeins, hverjir hafa síst haft efni á að kaupa grænmeti á Íslandi? Grænmeti á Íslandi er frekar dýrt. Það eru þeir sem hafa minnst milli handanna og þetta er fólkið sem þarf að tryggja og sjá til þess að geti keypt þessar hollustuvörur vegna þess að það segir sig sjálft að þarna er bæði um fæðuöryggi að ræða og vítamín og mjög heilnæm matvæli.
Ef við förum svona 30 ár aftur í tímann þá var einn og einn einstaklingur að reyna að rækta epli úti í garði hjá sér á Íslandi. Það var hægt að gera þetta í gróðurhúsum. En staðan í dag er orðin gjörólík. Í dag er hægt að framleiða og fá eplauppskeru á Íslandi á trjám bara úti í garði. Landslagið er að breytast. Við höfum framleitt á Íslandi, í gróðurhúsum, banana og ýmsar berjategundir og ávexti en við erum ekki að fara fram á að við förum í einhverja stórfellda framleiðslu á því, en hugsum líka út í tæknina, hvernig tæknin í gróðurhúsaframleiðslu er orðin. Við sjáum að tekin voru í gagnið háhraðatæknivædd gróðurhús uppi í Grafarvogi hjá Lambhaga. Þau eru með flottari gróðurhúsum sem maður hefur séð og eftir því maður sá best er framleiðslan á nokkrum hæðum og tölvustýrð. Þarna er verið að framleiða gæðagrænmeti, kál og ýmsar aðrar afurðir og ég efast ekki um að þessir einstaklingar gætu stóraukið framleiðsluna og framleitt þetta með mun hagkvæmari hætti ef þeir þyrftu ekki að borga himinhátt raforkuverð. Þá gætu þeir mjög fljótt, og ég efast ekki um það, séð til þess að við yrðum sjálfbær í framleiðslu á grænmeti, sem hlýtur auðvitað að vera keppikefli. Það getur ekki annað verið en að það sé það sem við stefnum að vegna þess að innflutningurinn er dýrari leiðin.
Við vitum að við höfum verið með framleiðslu og iðnað sem er gífurlega frekur á raforku eins og áliðnaðinn og annað. Ef við getum selt raforku á mjög hagkvæmu verði til mengandi framleiðslu hljótum við, og eigum, að geta framleitt grænmeti og látið grænmetisbændur fá mjög hagstætt verð á raforkunni til að sjá til þess í eitt skipti fyrir öll að við séum þess megnug að geta verið sjálfbær, og einnig það sem er gerð mikil krafa til í dag, að minnka kolefnisspor matvæla eins og hægt er. Það hlýtur að segja sig sjálft að það hlýtur að vera eitt besta ráðið í því að minnka kolefnisspor matvæla að sjá til þess að við þurfum ekki að flytja inn, og síðan hitt, sem hlýtur að vera mjög góð þróun, að við gætum sennilega farið að flytja út hágæðagrænmeti án allra aukaefna. Þá held ég að t.d. Danir myndu frekar velja það og að þurfa ekki að vera með eiturefni í þvagi. Það hlýtur að vera skelfilegt að það skuli geta fundist hjá börnum. Það hlýtur að eiga að hringja viðvörunarbjöllum hjá okkur um það að við þurfum þá að huga að því hvaða grænmeti við erum að flytja inn og hvaða ástand er á því grænmeti. Er ástandið betra en það sem um var rætt í Danmörku?
Þetta er það sem við þurfum að athuga en númer eitt, tvö og þrjú eigum við að sjá til þess í eitt skipti fyrir öll að við séum sjálfbær, að við þurfum ekki að flytja inn grænmeti, að við séum algjörlega sjálfbær, og síðan stefna að útflutningi. Ég sá einhvers staðar teikningar af gróðurhúsi. Þetta voru eiginlega mestu snilldarteikningar af gróðurhúsi vegna þess að þau voru byggð þannig upp að það var hægt að stækka þau og auka framleiðsluna alveg kerfisbundið á mjög einfaldan hátt. Þetta var framtíðarsýn, ég man ekki nákvæmlega hvar ég sá þetta og hvenær, en ég man að þetta greip athygli mína vegna þess hversu mikil snilldarhugmynd var þarna á ferð. Það sýnir það ef við gefum bændum tækifæri, ef við gefum fólki tækifæri til þess að gera hlutina á hagkvæman hátt og þurfa ekki að framleiða eitthvað með svo rándýru rafmagni að viðkomandi matvæli standa ekki undir því og bara útvaldir geta keypt þau vegna þess að þau eru svo dýr þá erum við á góðri leið og það er það sem við eigum að stefna að.