152. löggjafarþing — 35. fundur,  8. feb. 2022.

búvörulög.

32. mál
[16:46]
Horfa

Tómas A. Tómasson (Flf):

Virðulegi forseti. Háttvirtur þingheimur og þið, góða þjóð, sem sitjið heima og horfir á okkur þingmenn tala hér úr pontu. Ég heiti Tómas, kallaðar Tommi. Mig langar að leggja þessu frumvarpi svolítið lið vegna þess að ég hef skoðun á þessu. Um árabil hef ég borðað grænmeti á hverjum einasta degi. Ég elska spínatkál, hveitigras, tómata og gulrætur, allt framleitt á Íslandi. Á hverjum einasta degi hræri ég mér próteinsjeik með þessu grænmeti þannig að ég er sannfærður um gæði þess. Ég hef farið iðulega hérna upp í Lambhaga og fylgst með þróun þess fyrirtækis og mér til mikillar ánægju séð það vaxa. Ég er búinn að fara þangað núna í ein 10–15 ár og séð það vaxa og dafna og ég er alveg klár á því hver geta þess er til að framleiða mikið og gott grænmeti, jafnvel til útflutnings. Það er það sem þetta gengur út á hér, að hjálpa bændum að byrja á grænmetisrækt til útflutnings.

Kindakjöt. Ég er ættaður ofan úr Ferjukoti í Borgarfirði og í gamla daga, man ég, var aðalbúgreinin í Ferjukoti laxveiði. Síðan hætti laxveiðin, það var hætt að veiða lax í net og það var bara veiddur lax á stöng. Og núna er veiddur lax á stöng og honum er sleppt þannig að það er raunverulega ekkert upp úr því að hafa lengur. Við í Flokki fólksins höfum barist fyrir því að það verði lagt bann við blóðmerahaldi og ég vil blanda því máli saman við grænmetisræktunina vegna þess að ef bændur missa blóðmerahaldspeningana þá þurfa þeir að fara út í eitthvað annað sér til viðurværis og upplagt að byrja að framleiða grænmeti til útflutnings. Það er nógur markaður fyrir grænmeti í hinum útlenda heimi. Flugsamgöngur eru mjög greiðar og auðvelt að koma vörunni á markað. Kindakjöt er barn síns tíma. Sauðfé hefur fækkað svo mikið. Ég er alinn upp við það að það var alltaf soðið kindakjöt, kjötsúpa einu sinni í viku, saltkjöt og baunir og hryggur eða læri á sunnudögum. Þetta er bara ekki lengur. Þetta heyrir fortíðinni til, því miður. Eitthvað verða bændur að hafa fyrir stafni ef þeir missa uppistöðuna í framleiðsluvöru sinni. Ég man þegar ég var á sjónum í gamla daga og þegar loðnan var búin þá fórum við að veiða þorsk og svo fórum við að veiða eitthvað annað, þannig er þetta bara. Núna er bara kominn tími til þess að fara að framleiða grænmeti því að það er það sem við getum gert. Við höfum allt sem þarf til þess, rafmagnið, grænt rafmagn, við höfum góða mold, gott vatn og ferskt loft, allt sem þarf til að framleiða grænmeti. Ég legg til að hið háttvirta Alþingi samþykki þetta frumvarp okkar Flokks fólksins og hjálpi bændum að fá niðurgreitt rafmagn til framleiðslu á útflutningsvöru. Ekki veitir af að fá gjaldeyri í kassann.