hagkvæmnisathugun á uppbyggingu Skógarstrandarvegar.
Frú forseti. Þingsályktunartillögu þessa flutti ég í fyrsta sinn á 148. löggjafarþingi, 169. mál, en þá var hún ekki afgreidd. Hún var enn fremur lögð fram á 150. og 151. löggjafarþingi, 259. mál, og var Sigurður Páll Jónsson fyrsti flutningsmaður í bæði skiptin. Þingsályktunartillagan hefur hingað til ekki hlotið afgreiðslu og þar sem ástand Skógarstrandarvegar er enn áþekkt því sem var er hún var fyrst flutt og áætlanir gera ekki ráð fyrir nema takmörkuðum endurbótum í bráð er hún endurflutt nú óbreytt en með uppfærðri greinargerð, enda má ætla að sú hagkvæmnisathugun sem lögð er til verði til þess að treysta forsendur ákvörðunar um skjótari aðgerðir við uppbyggingu Skógarstrandarvegar en nú eru áformaðar.
Vegagerð um Skógarströnd hefur lengi verið í deiglunni, svo lengi að frumvarp til laga, sem lagt var fyrir Alþingi árið 1931, fjallar fyrst um umbætur á veginum og þá um brúargerð við Svelgsá. Þann 10. ágúst 1942, 11 árum síðar, lagði Bjarni Bjarnason fram þingsályktunartillögu þess efnis að eitthvað yrði gert í málefnum téðrar brúar. Árið 1968 lagði Friðjón Þórðarson, frændi minn heitinn, fram þingsályktunartillögu svohljóðandi, með leyfi forseta:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstjórn að hlutast til um, að Vegagerð ríkisins láti rannsaka aðstöðu til brúarbyggingar yfir Álftafjörð á Snæfellsnesi og geri kostnaðaráætlun um framkvæmd verksins, ef hagkvæmt þykir.“
Af þessari brúarsmíð hefur ekki enn orðið og eru þetta aðeins fáein dæmi um umræðu og umfjöllun um Skógarstrandarveg sem spannar í það minnsta 90 ár hér á Alþingi. Sumar brúarbyggingarnar eru smærri brúarstæði sem hafa komist til framkvæmda, en aðrar, líkt og brú yfir Álftafjörð, hafa ekki enn komist til framkvæmda. Því skal haldið til haga að fjörðurinn er mikill og erfiður þröskuldur á leiðinni á milli Dalabyggðar og Snæfellsness.
En það er ekki aðeins Álftafjörðurinn sem er erfiður viðureignar því að ástand vegarins alls er bágt. Vegstæðið um Skógarströnd er ekki aðeins íðilfagurt, með Breiðafjörð til annarrar handar og Bjarnarhafnarfjallið, heldur liggur vegurinn um láglendi og er því sjaldnast ófær vegna snjóa. Vegurinn er hins vegar þröngur og á honum margar einbreiðar brýr, blindhæðir og aðrar hættur. Þá er vegurinn fljótur að fara mjög illa í bleytutíð vegna mikillar umferðar. Í raun er vegurinn litlu betri en hann var fyrir um 50 árum. Rannsókn sem gerð var á slysatíðni á vegum á árunum 2007–2010, undir stjórn Þórodds Bjarnasonar, leiddi í ljós að Skógarstrandarvegur var einn þriggja hættulegustu vegkafla landsins. Síðan 2010 hefur umferð á landinu öllu aukist með tilkomu fleiri ferðamanna og umferð um Skógarströnd er meiri en nokkru sinni fyrr enda fréttir af umferðaróhöppum tíðar og ljóst að leiðin stendur engan veginn undir þeirri umferð sem um hana fer né þjónar hún því hlutverki sínu að mynda greið tengsl milli byggðra bóla sem við hana liggja.
Skógarstrandarvegur er stofnvegur og einn af örfáum slíkum á landsvísu þar sem ekki er bundið slitlag og framkvæmdir eru ekki hafnar með það að markmiði. Vegurinn á að vera tenging Snæfellinga við aðra landshluta, bæði Vestfirði og Norðurland. Ástand vegarins kemur þó í veg fyrir að svo sé og keyra íbúar á Snæfellsnesi um lengri veg suður fyrir Borgarnes til að komast norður á bóginn, ríflega 100 km lengri leið til Vestfjarða og 60 km lengri leið norður á land. Það sama gildir um vöruflutninga sem eru umtalsverðir á milli Vestfjarða, Snæfellsness og Norðurlands, ekki síst með sjávarafurðir. Það er mikilvægt að taka það með í reikninginn að aukin umferð, bæði fólksbíla og þungaflutninga um lengri veg, hefur í för með sér margfalt meiri útblástur gróðurhúsalofttegunda en ella. Styttri vegalengdir eru betri fyrir umhverfið.
Samkvæmt samgönguáætlun fyrir árin 2020–2034 er áætlað að heildarkostnaður við framkvæmdir á Skógarstrandarvegi sé 4 milljarðar kr. Langstærstur hluti þeirrar upphæðar, 3,1 milljarður, er áætlaður í verkið á þriðja tímabili áætlunarinnar árin 2030–2034. Ekki liggur fyrir hvenær áætlað er að verkinu verði lokið en samgönguáætlun ber með sér að það verður í það minnsta ekki á næstu 15 árum og sporin hræða með að staðið sé við slíkar langtímaáætlanir. Svo löng bið eftir nauðsynlegum úrbótum á veginum er ótæk og mikilvægt að ráðast í uppbyggingu á Skógarstrandarvegi mikið fyrr. Vegabætur á Skógarstrandarvegi eru nauðsynlegar af mörgum ástæðum. Leiðin er fjölfarin. Hún er verslunar- og viðskiptaleið og um hana fara ótal ferðamenn til að njóta þeirra menningarminja og áfangastaða sem leynast víða við innanverðan Breiðafjörð og opnast nýir möguleikar til margvíslegs samstarfs og bættrar þjónustu á svæðinu, svo sem í heilbrigðis- og menntamálum.
Þær byggðir sem um ræðir eiga sumar hverjar í vök að verjast í atvinnu- og byggðalegu tilliti og þegar horft er til aukinnar ferðaþjónustu er svæðið auðugt af fjölbreyttri náttúru, sögu og menningarhefðum sem gætu staðið undir uppbyggingu ferðaþjónustu ef greiðar samgöngur væru fyrir hendi. Sporin hræða þegar horft er til staðreynda undanfarinna ára hvað varðar eftirfylgni á samþykktum samgönguáætlunum. Þessari þingsályktunartillögu er ætlað að stuðla að því að uppbygging þessa mikilvæga samgöngumannvirkis komist í kring eins fljótt og unnt er. Það gerist ekki síst með því að skoða gaumgæfilega og draga fram hve mikla þýðingu slíkar samgöngubætur munu hafa og draga fram sterkari forsendur fyrir því að hraða uppbyggingu þessara vega.
Eftir nálægt 100 ára umræður um uppbyggingu Skógarstrandarvegar á Alþingi er kominn tími athafna. Látum verkin tala og tengjum betur saman byggðirnar við Breiðafjörð.