152. löggjafarþing — 35. fundur,  8. feb. 2022.

hagkvæmnisathugun á uppbyggingu Skógarstrandarvegar.

33. mál
[16:58]
Horfa

Berglind Ósk Guðmundsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég kem hér upp undir þessu máli af því að ég er einlægur áhugamaður um samgöngubætur á landsbyggðinni og langaði aðeins að spjalla meira um þetta. Eins og við vitum eru samgöngur forsenda blómlegra byggða. Eins og kemur fram í inngangi að þingsályktunartillögunni þá er þetta ekkert í fyrsta skipti sem þessi tillaga er lögð fram. Mig langaði aðeins að heyra frá þingmanni hvort það væri líklegt að þetta muni þá ná fram að ganga, hvort það væri einhver meiri bjartsýni.

Ég er líka að velta fyrir mér hvort vegurinn hafi verið endurmetinn frá árinu 2010 en eins og kemur fram í ályktuninni er vegurinn einn þriggja hættulegustu vegkafla landsins, og það er út frá skýrslu sem var gerð 2010. Ég er hins vegar að velta því fyrir mér hvort þetta hafi verið að endurmetið í ljósi þess að ferðamönnum hefur fjölgað verulega á þessu svæði, hvort búið sé að skoða þetta að nýju.

Ég hjó eftir setningunni í ræðu hv. þingmanns og einnig í textanum: „Sporin hræða þegar horft er til staðreynda undanfarinna ára hvað varðar eftirfylgni á samþykktum samgönguáætlunum.“ Mig langaði kannski aðeins að heyra meira um þetta, hvað hv. þingmaður hefur um þetta að segja.